Víkingaskipið Vésteinn á Þingeyri verður meðal annars heimsótt á uppskeruhátíðinni
Um næstu helgi. laugardaginn 15. október ætlar ferðaþjónustan á Vestfjörðum að
gera sér glaðan dag og halda uppskeruhátíð. Það eru allir sem starfa í
ferðaþjónustu eða hafa áhuga á greininni velkomnir að taka þátt í húllumhæinu.
Ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött til að bjóða starfsfólki sínu með á hátíðina,
því eins og við öll vitum þá er fátt mikilvægara en að fólk sem starfar í
greininni þekkir til hvors annars á því víðfeðmna svæði sem Vestfirðir eru.
Uppskeruhátíðin mun fara fram í Dýrafirði að þessu sinni og ljúka með mikilli
veislu á Hótel Núpi um kvöldið þar sem einnig er gert ráð fyrir að fólk gisti.
Skráning fer fram hjá Vesturferðum á netfanginu siggi@vesturferdir.iseða í síma
856 1777.
Í tengslum við uppskeruhátíðina hefur verið ákveðið að veita
árlega sérstök hvatningarverðlaun til einstaklings eða fyrirtækis í geininni sem
starfar í fjórðungnum og álitið að skarað hafi fram úr á árinu 2011 varðandi
nýsköpun, þjónustu eða umhverfisstefnu. Óskað verður eftir tilnefningum frá
greininni sjálfri. Í tilnefningunni þarf að koma fram nafn sendanda, hver er
tilnefndur og litlum rökstuðningi sem þarf að fylla minnst tvær til þrjár
setningar. Tilnefningarnar skal senda á netfang Ferðamálasamtaka Vestfjarða, vestfirdir@gmail.com merkt "Tilnefning".
Dagskráin er
eftirfarandi:
Mæting að Núpi kl. 12:00 – 14:00
Ferð með rútu um
hinn dýrðlega Dýrafjörð
14:30 Í Haukadal verður leiðsögn um söguslóðir Gísla
sögu Súrssonar. Þórir Örn Guðmundsson
15:00 Samkomuhúsinu á Gíslastöðum. Þrjú
sýnishorn úr staðbundnum leikritum Kómedíuleikhússin.