17. jún 10 - Sigurður Atlason
Könnun um nýtingu hafs og strandar
Undanfarið hefur verið í gangi könnun á meðal
ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum um viðhorf þeirra til nýtingu hafs og
strandar. Er ætlað að niðurstöður þessarar könnunar verði innlegg í þá umræðu
sem fer fram hjá Fjórðungssambandi Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða,
Háskólasetri Vestfjarða og Teiknistofunni Eik þessa dagana við að kortleggja
nýtingu sjávar og strandar á Vestfjörðum.
Sendir voru út 84 listar á ferðaþjónustuaðila á
Vestfjörðum og bárust einungis 16 listar til baka. Til þess að svörin verði sem
markverðust teljum við okkur þurfa minnst 30 svör.
Nú langar okkur að biðja þig, kæri ferðaþjónustuaðili, ef þú hefur ekki fengið spurningalista eða fengið og ekki sent hann, þá langar okkur til að biðja þig um að fylla hann út og senda hann til okkar hjá Rannsókna- og fræðasetri H.í. á Vestfjörðum í Bolungarvík. Hér meðfylgjandi er spurningalisti sem bæði er hægt að fylla út í tölvu og senda til baka í netpósti eða prenta út og senda í venjulegum pósti.
12. jún 10 - Sigurður Atlason
Göngukort Ferðamálasamtakanna vinsæl
Góð eftirspurn hefur verið eftir göngukortum Ferðamálasamtakanna það sem af er sumri. Söluaðilum, ferðaþjónustuaðilum og verslunareigendum er bent á að hægt er að nálgast kortin á sérstakri sölusíðu kortanna á vefnum. Einfaldast er að smella hér eða á myndina sem er að finna hér í dálkinum vinstra megin á síðunni. Þá opnast sölusíða Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
16. maí 10 - Sigurður Atlason
Auglýst eftir nýjum forstöðumanni Markaðsstofu Vestfjarða
Markaðsstofa Vestfjarða hefur auglýst laust til umsóknar starf forstöðumanns
Markaðsstofunnar. Jón Páll Hreinsson hefur gegnt stöðunni undanfarin ár en hefur
ákveðið að hefja störf á nýjum vettvangi. Stjórn Markaðsstofu Vestfjarða fékk
Talent Ráðningar til að halda utan um auglýsinga- og ráðningarferlið.
Umsækjendur skulu sækja um starfið á heimasíðu Talent Ráðningar á slóðinni www.talent.is. Umsóknarfrestur er til 30.
maí.
14. maí 10 - Sigurður Atlason
Borea Adventures býður til opnunarhófs
Fyrirtækið Borea Adventures opnar á sunnudaginn næstkomandi 16. maí kl. 16:00 skrifstofu og vinnuaðstöðu sína í Hæstakaupstaðarhúsinu í Aðalstræti á Ísafirði. Hlutverk hússins verður fyrst og fremst að hýsa búnað fyrirtækisins, starfsfólk og vera aðsetur gesta sem eru að koma í spennandi ferðir um Vestfirði undir vörumerkinu North Explorers. North Explorers er hluti af Borea Adventures sem hefur síðan 2006 staðið fyrir ævintýraferðum á seglskútu um Vestfirði, austur Grænland og Jan Mayen við góðan orðstír. North Explorers mun sjá um allar dagsferðirnar og lengri kajakferðir sem boðið verður upp á í fyrsta skipti í sumar. Við trúum að besti ferðamátinn sé að ferðast ,,hljóðlega" þ.e. notast sem minnst við vélknúinn ökutæki. Því leggjum við mesta áherslu á gönguferðir, fjallgöngur og kajakferðir af ýmsum erfiðleikum. Í nánustu framtíð verður bætt við fleiri ferðum af ýmsu tagi. Þrír starfsmenn munu sinna þessum ferðum í sumar og erum við bjartsýnir á að vertíðin verði góð.
Eins og áður segir verður húsið opnað kl 16:00 en kl. 20:00 verður sýnd stórskemmtileg kajakmynd sem heitir "Paddle to Seattle" um ferðalag félaganna Josh Thomas og J. J. Kelley er þeir réru á heimasmíðuðum kajökum 1300 mílur frá Alaska til Seattle. Myndin hefur hlotið fjölmörg verðlaun en svo skemmtilega vill til til að þeir verða staddir á Ísafirði þessa helgi og munu vonandi kynna myndina áður en sýning hefst.
Allir velkomnir
www.boreaadventures.com
Eins og áður segir verður húsið opnað kl 16:00 en kl. 20:00 verður sýnd stórskemmtileg kajakmynd sem heitir "Paddle to Seattle" um ferðalag félaganna Josh Thomas og J. J. Kelley er þeir réru á heimasmíðuðum kajökum 1300 mílur frá Alaska til Seattle. Myndin hefur hlotið fjölmörg verðlaun en svo skemmtilega vill til til að þeir verða staddir á Ísafirði þessa helgi og munu vonandi kynna myndina áður en sýning hefst.
Allir velkomnir
www.boreaadventures.com
7. maí 10 - Sigurður Atlason



