Póstlisti
14. feb 12 - Sigurður Atlason

Ferðin þín í bækling Vesturferða?

Komið sælir ferðaþjónar á Vestförðum

Þá er vinna við bækling Vesturferða fyrir 2012 komin á fullt og verður unnið hratt og örugglega í að koma honum í prentun, ekki seinna en í næstu viku, þar sem Vesturferðir eru á leið á ferðaráðstefnuna ITB í Berlin í byrjun mars. Þessi bæklingur verður byggður á bæklingnum 2011 og ef þið ferðaþjónar teljið ykkur vera með ferð sem heima á í þessum bækling þá endilega verið í sambandi við mig í síma 895-8247 á skrifstofutíma í þessari og næstu viku, eða sendið mér post á gummi@hotelnupur.is
 
Kær kveðja
Guðmundur H.Helgason
formaður stjórnar Vesturferða
14. feb 12 - Sigurður Atlason

Ferðin þín í bækling Vesturferða?

KoKomið sælir ferðaþjónar á Vestfjörðum.
 
Þá er vinna við bækling Vesturferða fyrir 2012 komin á fullt og verður unnið hratt og örugglega í að koma honum í prentun, ekki seinna en í næstu viku, þar sem Vesturferðir eru á leið á ferðaráðstefnuna ITB í Berlin í byrjun mars. Þessi bæklingur verður byggður á bæklingnum ´2011 og ef þið ferðaþjónar teljið ykkur vera með ferð sem heima á í þessum bækling þá endilega verið í sambandi við mig í síma 895-8247 á skrifstofutíma í þessari og næstu viku, eða sendið mér post á gummi@hotelnupur.is
 
Kær kveðja
Guðmundur H.Helgason

Formaður stjórnar Vesturferða

Námskeið um markaðssamskipti í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða og Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða

Hólmavík
7. febrúar nk: http://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/markasmal_og_almannatengsl1/
Reykhólum
7. febrúar nk: http://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/markasmal_og_almannatengsl_reykholar/
Patreksfirði
9. febrúar nk:  http://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/markasmal_og_almannatengsl_patreksfjoerur/

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi.

Á námskeiðinu er leitast við að svara eftirfarandi spurningum ásamt mörgum öðrum og að auki skoða
raunveruleg dæmi:
  • Hvað eru markaðsmál?
  • Hvernig er hægt að nýta almannatengsl til að ná árangri?
  • Hvað eru samhæfð markaðssamskipti?
  • Hvaða máli skiptir ímynd?
  • Hvaða áhrif hefur vörumerki?
Gagnamappa innifalin í verði.
Námskeiðið kostar kr. 9.900 og er sex kennslustundir.

Nánari upplýsingar veitir Gústaf Gústafsson í síma 662-4156 eða í gegnum tölvupóst á netfangið gustigusta@gmail.com.

Vakin er athygli á því að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna námskeiða.
9. des 11 - Gústaf Gústafsson

Aðgengi hreyfihamlaðra og gæludýr

Kæru samstarfsaðilar,

Upplýsingamiðstöðin á Ísafirði er nú að safna saman upplýsingum um þá ferðaþjóna á Vesfjörðum sem:

a) eru vel í stakk búnir til að taka á móti fötluðu ferðafólki. Þetta geta t.d. verið staðir þar sem aðgengi fyrir hreyfihamlaða er gott, söfn sem bjóða upp á sérstakar lausnir fyrir blinda og sjónskerta o.s.frv.
b) leyfa ferðafólki að hafa með sér gæludýr (fyrirspurnir um slíkt tengjast fyrst og fremst hundum).

Þeir sem bjóða uppá svona þjónustu eru vinsamlegast beðnir að láta vita af sér með tölvupósti á netfangið info@westfjords.is.

 

Bestu kveðjur,

 

Heimir

 

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða / Westfjords Tourist Information Office
Edinborgarhúsinu
400 Ísafjörður
Iceland
Sími / Tel (+354) 450-8060

Ágætu félagar

Nú fer að líða að innheimtu gistináttaskattsins. Ef þið farið inn á www.rsk.is þá er umfjöllun um hann þar á forsíðunni. Þar er nú kveðið á útlit reikningsins en við höfum lagt áherslu á að hægt sé að hafa texta neðst um að skatturinn sé innifalinn. Það þarf heldur ekki að hafa númerið á skattinum eins og fjármálaráðuneytið sagði okkur. Bendum ykkur á að lesa þetta á heimasíðunni þeirra.

Kveðja
SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR
 
Sent á póstlista af FMSV
www.vestfirskferdamal.is
22. nóv 11 - Gústaf Gústafsson

Síðustu forvöð - Á ferð um Ísland.

Nú eru síðustu forvöð að senda inn breytingar og viðbætur vegna þjónustulista í ferðahandbókinni Á ferð um Ísland 2012. Skráningin er ókeypis og hægt er að skoða listann frá 2011 með því að smella á þennan hlekk: www.heimur.is/heimur/upload/files/a_ferd_um_island/2011/a-ferd2011-bls-82-103-vestfirdir.pdf.

Vinsamlegast sendið breytingar og ábendingar á netfangið info@westfjords.is ekki seinna en í lok þessarar viku.

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða.
450-8060.
3. nóv 11 - Sigurður Atlason

Námskeið - Markaðsmál og almannatengsl

Námskeið í markaðs- og almannatengslum verður haldið í samvinnu Gústafs Gústafssonar, forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða, Fræðslumiðstöðvarinnar og Verkalýðsfélags Vestfirðinga, dagana 5. og 8. nóvember n.k.

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendum helstu áherslur og leikreglur í markaðsmálum og almannatengslum. Markmiðið er að auka skilning á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi.

Á námskeiðinu er leitast við að svara eftirfarandi spurningum ásamt mörgum öðrum og að auki skoða
raunveruleg dæmi:

  • Hvað eru markaðsmál?
  • Hvernig er hægt að nýta almannatengsl til að ná árangri?
  • Hvað eru samhæfð markaðssamskipti?
  • Hvaða máli skiptir ímynd?
  • Hvaða áhrif hefur vörumerki?

Léttur hádegisverður og gagnamappa innifalin í verði.

Eftirfarandi dagsetningar eru í boði og er hvert námskeið 4,5 tímar (7 kennslustundir):

  • 5. nóvember, laugardagur kl. 10-15.30
  • 8. nóvember, þriðjudagur kl. 10-15.30

Vinsamlega tilgreinið hvor dagur hentar í athugasemdareit þegar skráð er á námskeiðið.

Nánari upplýsingar veitir Gústaf Gústafsson í síma 662-4156 eða í gegnum tölvupóst á netfangið gustigusta@gmail.com

Skráning hér:
http://www.frmst.is/index.php/namskeid/texti/markasmal_og_almannatengsl/

Vaxtarsamningur Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða auglýsa eftir umsóknum um styrk vegna markaðssetningar fyrir afþreyingarfyrirtæki í ferðaþjónustu á Vestfjörðum.


Afþreyingafyrirtækið verður að bjóða upp á þjónustu á Vestfjörðum sem höfðar til innlendra og erlendra ferðamanna, með áherslu á erlenda ferðamenn. Þjónustan sem í boði er verður að hafa sérstöðu á landsvísu og ýta undir sérstöðu svæðisins.


Markmiðið er að fjölga erlendum ferðamönnum á svæðinu og lögð er áhersla á að ná til nýrra markhópa.


Styrkurinn á að nýtast til markaðssetningar sem talið er að henti best fyrir viðkomandi afþreyingu.

Valin verða tvö fyrirtæki til þátttöku og hlýtur hvert fyrirtæki 2.500.000 króna í markaðsfé auk flugmiða frá Icelandair.


Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu Atvest / umsóknir og nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir verkefnastjóri Atvest í síma 450-3053 eða með vefpósti asgerdur@atvest.is

Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2011

Ágætu ferðaþjónar
Nú er komið að hinni árvissu uppfærslu á þjónustulistum fyrir handbókina Á ferð um Ísland. Þetta er ókeypis skráning, en bókin er gefin út á íslensku, ensku og þýsku og er afar mikið notuð af ferðafólki. Það er því mikilvægt fyrir ferðaþjóna að skráningar þeirra séu réttar. Mig langar að biðja ykkur að skoða skráningarnar ykkar úr bókinni frá liðnu sumri og láta mig vita ef þið viljið breyta einhverju fyrir næstu útgáfu.
Eins væri gott að fá að vita af því ef þið sjáið eitthvað annað sem þarf að breyta, t.d. að bæta nýjum ferðaþjónum inn á listann eða strika út einhverja sem eru hættir. Hægt er að nálgast rafræna útgáfu af Vestfjarðahluta bókarinnar hér: www.heimur.is/heimur/upload/files/a_ferd_um_island/2011/a-ferd2011-bls-82-103-vestfirdir.pdf en sjálfsagt eiga einhverjir líka pappírsútgáfuna.

Vinsamlegast sendið breytingar og viðbætur á netfangið info@westfjords.is.


Bestu kveðjur
Heimir Hansson

Upplýsingamiðstöð Vestfjarða / Westfjords Tourist Information Office
Edinborgarhúsinu
400 Ísafjörður
Iceland
Sími / Tel (+354) 450-8060

Kæru Dýrfirðingar

 

Ég vil fyrir hönd Ferðamálasamtaka Vestfjarða þakka ykkur öllum kærlega fyrir allt sem þið lögðuð á ykkur til að uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar síðasta laugardag varð jafn glæsileg og raunin varð. Þetta var vel heppnað í alla staði og einstaklega vel skipulagt. Það var vel hugsað um hópinn hvar sem hann kom og einkar ánægjulegt fyrir okkur öll að kynnast því svona rækilega hvað Dýrafjörður hefur upp á mikið að bjóða og hversu vel er vandað til verka. Það er ekki síður uppörvun og hvatning til allra þeirra sem tóku þátt í ferðinni.

 

  • Þóri Erni vil ég senda kveðjur fyrir sérlega áhugaverða og fróðlega leiðsögn. Það var gaman að kynnast sögu sveitarinnar, heyra af Gísla súra, heimsækja Víkingasvæðið og fá að berja víkingaskipið Véstein augum.

  • Kómedíuleikhúsið fær kveðju frá okkur og þakkir fyrir stórskemmtilega stund á Gíslastöðum. Takk kærlega fyrir okkur Elfar Logi, Ársæll og Marsibil. Kómedíuleikhúsið er eitthvað sem við getum öll verið stolt af að hafa á Vestfjörðum.

  • Eigendur og starfsfólk Við Fjörðinn fyrir veitingarnar og móttökurnar. Það var gaman að sjá alla þá natni sem er lögð þar fram, jafnt innan dyra sem utan. Þið sendið einnig kveðju frá okkur til bílstjóranna með kærri þökk.

  • Mig langar að koma kveðju til Hótel Sandafells. Heimsóknin í það mikla hús var mikil upplifun og er mikið vitni um þann mikla kraft sem finnst í vestfirskri ferðaþjónustu.

  • Eigendum og starfsfólki Veitingahornsins þakka ég fyrir hönd okkar allra góðar móttökur og sérlega góðar veitingar.

  • Góðar kveðjur til Gömlu vélsmiðjunnar á Þingeyri sem er líklega eitt af merkari fyrirbærum í landinu sem heldur um atvinnusöguna.

  • Síðast en ekki síst sendi ég kærar kveðjur til bræðranna á Hótel Núpi og starfsfólks þeirra. Þið unnuð afrek við allt skipulag.

Það er alltaf erfitt að gera svona lista og ég vona ég gleymi engum sem komu að skipulagningu þessa skemmtilega dags. Ef svo er þá bið ég innilegrar afsökunar á því, en svo því sé haldið til haga þá var ekkert sem skyggði á þennan ógleymanlega dag af ykkar hendi. Veðrinu getum við ekki ráðið, því miður.

 

Við endurtökum leikinn að ári, þó líklega aðeins fyrr að hausti og fáum þá væntanlega að kynnast Bolungarvík og nágrenni, en það hefur borist boð um það frá Bolvíkingum að fá að halda uppskeruhátíðina að ári.

 

Með kærri kveðju,

f.h. Ferðamálasamtaka Vestfjarða

 

Sigurður Atlason

Síða 1 af 10

Vefumsjón