Póstlisti
13. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Fréttabréf Ferđamálasamtaka Vestfjarđa 13.nóvember


          Fréttablað frá Vestfirskferdamal.is

13.nóvember, 2008

Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir af samskiptavef ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum.

Frekari upplýsingar um vefin og póstlisan er að finna á síðunni og hjá umsjónarmanni hennar.

Markaðsstofa Vestfjarða
Jón Páll Hreinsson
s.450 4040
jonpall@westfjords.is




  13. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Ferðakort Markaðsstofu 2009



Eins og áður hefur komið fram á þessum vef er í undirbúningi endurnýjun á ferðakorti markaðsstofu Vestfjarða fyrir 2009.

Kortið vakti mikla lukka á síðasta sumri og var mikið notað af ferðamönnum bæði meðal þeirra sem þegar voru að ferðast um Vestfirði og af þeim sem voru að leita sér að upplýsingum um Vestfirði áður en lagt var af stað í ferðalagið.

Réttar upplýsingar eru því lykilatriði til að kortið nýtist viðskiptavinum okkar í ferðaþjónustunni. Þessa daganna er upplýsingamiðstöðin á Vestfjörðum að fylgja eftir skráningum í gagnagrunn ferðamálastofu, sem er grunnurinn að þeim gögnum sem notaður er í kortið. Ég vill hvetja alla ferðaþjónustuaðila til að skoða sína skráningu og hafa samband við Heimi, forstöðumann landshlutamiðstöðvarinnar á Ísafirði, í 450 8060 eða info@vestfirdir.is

Til gamans fylgir hér með bréf sem upplýsingamiðstöðinn fékk eftir að þýsk ferðaskrifstofa fékk kortið í hendurnar.

Dear Heimir!

 

I've got your maps about the vestfjords/vestisland they are absolutely awesome!

 

Well could you send us some maps like these for the nordwest/island specially about reykavic and the area around? - we will visit kevlavik/reykjavik, laugarvatn/pingvallavatn, hvalfjördur/borgafjördur, myar area and stykkisholmur should be on the map.

 

If this maps are like the vestfjord maps it would be so awesome!

 

We need about 20 pieces.

 

Thank you so much! J

 

Wish you a nice week!

Yours faithfully,

 

Julia Pfister

birdingtours GmbH



12. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Matattengd ferðaþjónusta er vaxtabroddur til framtíðar

Vöfflur á Hrafnseyri við Arnarfjörð
Vöfflur á Hrafnseyri við Arnarfjörð


Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur verið að vinna að og móta verkefni er varðar matartengda ferðaþjónustu. Markmið með þeirri vinnu er að efla samstarf innan svæðis er varðar staðbundna matvælaframleiðslu og leiða saman aðila frá veitingahúsum, verslunum, ferðaþjónustu og matvælaframleiðendur í þeim tilgangi að vinna saman að vöruþróun, sameiginlegri markaðssetningu og ýmislegt fleira. Það er alveg ljóst að möguleikarnir eru miklir og ýmis tækifæri vannýtt t.a.m. hvað varðar matvælaframleiðslu á Vestfjörðum.

Nú leitum við af aðilum í þessum greinum sem vilja koma að undirbúningi og þróun með okkur að verkefninu. Það er mikilvægt að bæði reynslumiklir og áhugasamir aðilar komi að þróuninni í upphafi og hafi þar með áhrif á verkefnið og vinnuna sem framundan er. Verkefnið mun svo vera opið öllum til þátttöku þegar undirbúningsferli er lokið.

Markmið verkefnisins eru m.a.:

- Byggja á sérstöðu svæðisins til að skapa virðisauka

- Efla samstarf innan og utan svæðis

- Gera vestfirsk matvæli sýnileg

- Nýjungar í framreiðslu

- Safna og vernda vinnuaðferðir og hefðir

- Auka gæðaímynd

- Hvetja veitingastaði til að nota staðbundið hráefni

 

Fyrirtæki eru hvött til að hafa samband við starfsmenn Atvest á Ísafirði, Hólmavík og Patreksfirði til að kynnast verkefninu og skrá sig til þátttöku í undirbúningshóp.

Starfsmenn Atvest

Ásgerður Ísafirði, sími 450 3053,

Viktoría Hólmavík, sími 451 0077

Guðrún Patreksfirði, sími 490 2350




11. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Stoðgrein ferðaþjónustu á Vestfjörðum

 

Ferðaþjónusta er grein sem hefur vaxið mjög ört á Vestfjörðum eins og á landinu öllu síðastliðin ár. Greinin er ung og mikil vöruþróun og uppbygging á sér stað en það er eins með þessa grein og aðrar greinar að hlúa þarf vel að fyrirtækjum og frumkvöðlum varðandi mismunandi ráðgjöf og aðra nauðsynlega þjónustu sem hugsanlega þarf á að halda.

Stoðgrein í ferðaþjónustu er hugtak sem margir eiga ef til vill erfitt með að átta sig á og skilgreina hverjir tilheyra stoðgreininni og hvaða hlutverki þeir gegna.  Á Vestfjörðum eru fjölmargir sem mynda stoðgreinina og margvísleg þjónusta er í boði fyrir aðila í ferðaþjónustu en stoðgreinina má skilgreina sem aðila innan hins opinbera, sveitafélög og félagasamtök sem hafa það hlutverk að vinna með og aðstoða ferðaþjónustufyrirtæki varðandi vöruþróun, ráðgjöf, markaðssetningu, fræðslu og fleira og stuðla þar með að bættu rekstrarumhverfi þeirra.

Á Vestfjörðum eru það aðilar eins og t.d Atvest og Markaðsstofa Vestfjarða ásamt fjölda annarra sem mynda stoðkerfið en einnig spila Útflutningsráð og Ferðamálastofa mikilvægt hlutverk.

Það er mikilvægt að stoðgreinin sé gegnsæ og auðvelt sé fyrir ferðaþjónustuaðila að geta leitað til greinarinnar  með sín viðfangsefni. Það er einnig mikilvægt að geta sýnt með afgerandi hætti hverjar starfslínur og verksvið hvers og eins er og þar með undirstrikað á hvaða sviði sérþekking einstakra aðila eða stofnanna liggur.

Núna stendur yfir vinna undir forystu Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, þar sem þau fyrirtæki og stofnanir sem koma að stoðgreinni hittast í þeim tilagangi að skilgreina sín verkefni og hvernig þau geta unnið sameiginlega að því markmiði að bæta innra og ytra umhverfi ferðaþjónustufyrirtækja á Vestfjörðum.   Slík vinna er löngu tímabær og mikið fagnaðarefni að þeir aðilar sem mynda stoðgreinina séu farnir af stað með slíka vinnu.

Afraksturinn verður tekin saman í rit þar sem áherslur og verkefni þeirra stofnanna og annarra aðila sem eru í stoðgreininni  verður gerð skil.

 

 

Ásgerður Þorleifsdóttir

Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða

 

Jón Páll Hreinsson

Markaðsstofu Vestfjarða



10. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Námskeið í verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu - Ný tímasetning!

Fræðslumiðstöð Vestfjarða: mynd af www.frmst.is
Fræðslumiðstöð Vestfjarða: mynd af www.frmst.is


Námskeið á vegum Útflutningsráðs í  verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, sem vera átti síðastliðinn miðvikudag verður haldið í Fræðslumiðstöð Vestfjarða miðvikudaginn 12. nóv. n.k frá kl 17-21.  Námskeiðið mun fara fram í gegnum fjarfundabúnað á sama tíma í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði og Þróunarsetrinu á Hólmavík.

Á  námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Lögð verður áhersla á að öll umfjöllun sé einföld og aðgengileg og mun allt efni og framsetning þess byggja á því að þátttakendur hafi fjölþættan bakgrunn og mismikla þekkingu á bókhaldi, rekstraráætlunum og ársreikningum. Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að vera betur undir það búnir að leggja raunsætt mat á hugmyndir sínar um verðlagningu og uppbyggingu þjónustuframboðs, hvað er hagkvæmt og hvað hlutirnir þurfa að kosta. Ferðaþjónustuaðilar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér námskeiðið.

 

Námskeiðið er styrkt af Vaxtarsamningi Vestfjarða og er aðgangur ókeypis.

 

Allar nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053.

 

ATH!!! Mikilvægt er að fólk skrái sig á námskeiðið og fer skráning fram í síma 450 3053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is

 


6. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Ferðaþjónstan mikilvægur drifkraftur


Eftirfarandi fréttatilkynning birtist á vef Iðnaðarráðuneytisins í dag, 28.okt:

Ferðamálaráð hefur lagt eftirfarandi tillögur fyrir iðnaðarráðherra en ferðamálaráði er m.a. ætlað að vera ráðherra til ráðgjafar um kynningarmál ferðaþjónustunnar og áætlanir í ferðamálum:

Ferðaþjónustan hefur ávallt verið í fararbroddi í almennri kynningu á Íslandi og því er eðlilegt að horft verði til hennar á næstunni þegar ríður á að bæta orðspor Íslands. Ferðaþjónustan er jafnframt gríðarlega mikilvægur drifkraftur í byggðum landsins og er ein besta og hagkvæmasta leiðin til að fjölga störfum og auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar.

  • Fjárfesting í markaðssetningu og kynningu á Íslandi verði aukin frá því sem birtist í fjárlagafrumvarpi og horft verði til náins samstarfs við fyrirtæki í greininni við uppbyggingu á kynningar- og markaðsstarfi til lengri tíma.
  • Vinnu nefndar, sem nú vinnur úr tillögum ímyndarnefndar forsætisráðherra, verði hraðað og Promote Iceland verkefninu verði komið í framkvæmd eigi síðar en um áramót. Tryggt verði að hagsmunir og sjónarmið ferðaþjónustunnar verði í forgrunni við undirbúning, útfærslu og framkvæmd þessa mikilvæga verkefnis.
  • Uppbygging markaðsstofa um landið verði studd og starf þeirra eflt m.a. í samræmi við tillögur nefndar um endurskoðun ferðamála. Markmiðið sé að styrkja rekstrargrundvöll, samræma aðgerðir og stuðla að heildstæðum skilaboðum um Ísland sem áfangastað - innanlands og utan.
  • Í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og fleiri verði settur kraftur í að auka nýsköpun og efla vöruþróun í greininni t.d í menningar- og heilsutengdri ferðaþjónustu.
  • Að komandi ferðamálaþing iðnaðarráðuneytisins verði nýtt til að koma þeim skilaboðum til landsmanna að í eflingu ferðaþjónustunnar felist einstök sóknarfæri fyrir íslenskt efnahagslíf.

Hlekk á tilkynninguna er að finna hér: http://www.idnadarraduneyti.is/Forsida_IVR/nr/2657



6. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Upplýsingar á ensku um stöðu mála í íslensku efnahagslífi - TIL AÐ SENDA Á ERLENDA VIÐSKIPTAVINI

Á heimasíðu SAF er að finna gagnlegan texta til að senda á erlenda viðskiptavini sem eru eftilvill efins um ástandið á Íslandi og eru hikandi að ferðast til landsins.

Öllum ferðaþjónum er frjálst að nota þennan texta til að senda og í raun hvet ég alla til að gera það.

mbk, jonpall

ICELAND WELCOMES YOU

While Iceland is currently dealing with a serious financial crisis like the rest of the world business in the country is being conducted as usual. All services in Iceland are functioning normally-including banking services. Hotels, restaurants, airlines, car rentals, currency exchange facilities, offices and shops are all open for business and welcome travellers. 


Visitors can be assured that they will be treated with the same friendly and exceptional hospitality that Icelanders are renowned for throughout the travel world. The autumn and winter season is an exciting time to visit Iceland as rates are lower, good deals on offer everywhere and the nature absolutely stunning.


Travellers who experience Iceland firsthand will be surprised by the warmth and good humour of its people and by the comfort of conducting business in a relaxed and easy democratic environment. It's business as usual.







Námssmiðja hjá Breiðafjarðarfléttu 7.-9.nóvember

Lundin við Látrabjarg er einn af
Lundin við Látrabjarg er einn af "seglum" Breiðafjarðar og landsins alls!

 

Þann 7. - 9.nóvember nk. fer fram námssmiðja Breiðafjarðarfléttunar í Stykkishólmi.

Námssmiðjan er þróuð á vegum Háskólans á Hólum og hefur yfirskriftina "Að þróa sjálfbæra og náttúrutengda ferðavöru á Norðurslóðum"
 

Leiðbeinandi er Kjartan Bollason frá  Háskólanum á Hólum. Kjartan hefur reynslu af því að vinna sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn og af kennslu á námskeiðum á vegum Hólaskóla, bæði fyrir nemendur og fyrirtæki.

 

Markmið námskeiðs er að kenna fyrirtækjum hvernig þau geta þróað nýja ferðavöru eða betrumbætt núverandi ferðavöru í náttúrutengdri ferðaþjónustu í sátt við umhverfið og samfélag og með hagnað í huga. Nálgun námskeiðs byggist á að nýta reynslu fyrirtækjanna sjálfra og hvaða lærdóm þau geta dregið af henni.

 

Námskeiðið byggir á  handbók, en ekki er farið í alla kafla hennar. .Fyrirtækin fá handbók sem þau geta svo notað sér til aðstoðar við rekstur síns fyrirtækis. 


Nánari upplýsingar og kennsluáætlun er að finna hér.
 
Námskeiðið er haldið á Hótel Stykkishólmi og eru allir ferðaþjónar á Vestfjörðum hvattir til að nota tækifærið að læra um áhugaverða nálgun í ferðaþjónustu og kynnast félagsmönnum Breiðafjarðarfléttunnar, sem eru ferðaþjónustuaðilar umhverfis Breiðafjörð. Þátttökugjald fyrir aðila utan Breiðafjarðarfléttunar er 10.000.- Hægt er að fá gistingu á Hótel Stykkishólmi á kr. 5.000.- og hátíðarkvöldverð á kr. 4.500.-

Skráning fer fram hjá verkefnisstjóra Breiðafjarðarfléttunar Ingibjörgu Þórhallsdóttur í ingalo@ru.is



Námskeið um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu 5.nóv

Námskeið á vegum Útflutningsráðs um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða verður haldið í Háskólasetrinu á Ísafirði, stofu 1, Miðvikudaginn 5. nóv. n.k frá kl 13-17.  Námskeiðið mun fara fram í gegnum vefbúnað á sama tíma í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði og Grunnskólanum á Hólmavík.

Á  námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Lögð verður áhersla á að öll umfjöllun sé einföld og aðgengileg og mun allt efni og framsetning þess byggja á því að þátttakendur hafi fjölþættan bakgrunn og mismikla þekkingu á bókhaldi, rekstraráætlunum og ársreikningum. Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að vera betur undir það búnir að leggja raunsætt mat á hugmyndir sínar um verðlagningu og uppbyggingu þjónustuframboðs, hvað er hagkvæmt og hvað hlutirnir þurfa að kosta. Ferðaþjónustuaðilar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér námskeiðið.


Auglýsingu um námskeiðið má sjá hér.
 

Námskeiðið er styrkt af Vaxtarsamningi Vestfjarða og er aðgangur ókeypis.

 

Skráning og allar nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is




Námssmiðja hjá Breiðafjarðarfléttu 7.-9.nóvember

Lundin við Látrabjarg er einn af
Lundin við Látrabjarg er einn af "seglum" Breiðafjarðar og landsins alls!

 

Þann 7. - 9.nóvember nk. fer fram námssmiðja Breiðafjarðarfléttunar í Stykkishólmi.

Námssmiðjan er þróuð á vegum Háskólans á Hólum og hefur yfirskriftina "Að þróa sjálfbæra og náttúrutengda ferðavöru á Norðurslóðum"
 

Leiðbeinandi er Kjartan Bollason frá  Háskólanum á Hólum. Kjartan hefur reynslu af því að vinna sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðamenn og af kennslu á námskeiðum á vegum Hólaskóla, bæði fyrir nemendur og fyrirtæki.

 

Markmið námskeiðs er að kenna fyrirtækjum hvernig þau geta þróað nýja ferðavöru eða betrumbætt núverandi ferðavöru í náttúrutengdri ferðaþjónustu í sátt við umhverfið og samfélag og með hagnað í huga. Nálgun námskeiðs byggist á að nýta reynslu fyrirtækjanna sjálfra og hvaða lærdóm þau geta dregið af henni.

 

Námskeiðið byggir á  handbók, en ekki er farið í alla kafla hennar. .Fyrirtækin fá handbók sem þau geta svo notað sér til aðstoðar við rekstur síns fyrirtækis. 


Nánari upplýsingar og kennsluáætlun er að finna hér.
 
Námskeiðið er haldið á Hótel Stykkishólmi og eru allir ferðaþjónar á Vestfjörðum hvattir til að nota tækifærið að læra um áhugaverða nálgun í ferðaþjónustu og kynnast félagsmönnum Breiðafjarðarfléttunnar, sem eru ferðaþjónustuaðilar umhverfis Breiðafjörð. Þátttökugjald fyrir aðila utan Breiðafjarðarfléttunar er 10.000.- Hægt er að fá gistingu á Hótel Stykkishólmi á kr. 5.000.- og hátíðarkvöldverð á kr. 4.500.-

Skráning fer fram hjá verkefnisstjóra Breiðafjarðarfléttunar Ingibjörgu Þórhallsdóttur í ingalo@ru.is



Námskeið um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu 5.nóv

Námskeið á vegum Útflutningsráðs um verðlagningu útflutningsvöru og þjónustu í samvinnu við KPMG og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða verður haldið í Háskólasetrinu á Ísafirði, stofu 1, Miðvikudaginn 5. nóv. n.k frá kl 13-17.  Námskeiðið mun fara fram í gegnum vefbúnað á sama tíma í Þekkingarsetrinu Skor á Patreksfirði og Grunnskólanum á Hólmavík.

Á  námskeiðinu verður fjallað um áhrif mismunandi aðferða á áætlaðan rekstrar- og efnahagsreikning. Lögð verður áhersla á að öll umfjöllun sé einföld og aðgengileg og mun allt efni og framsetning þess byggja á því að þátttakendur hafi fjölþættan bakgrunn og mismikla þekkingu á bókhaldi, rekstraráætlunum og ársreikningum. Að loknu námskeiði ættu þátttakendur að vera betur undir það búnir að leggja raunsætt mat á hugmyndir sínar um verðlagningu og uppbyggingu þjónustuframboðs, hvað er hagkvæmt og hvað hlutirnir þurfa að kosta. Ferðaþjónustuaðilar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér námskeiðið.


Auglýsingu um námskeiðið má sjá hér.
 

Námskeiðið er styrkt af Vaxtarsamningi Vestfjarða og er aðgangur ókeypis.

 

Skráning og allar nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is

23. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Fréttabréf frá www.vestfirskferdamal.is

          Fréttablað frá Vestfirskferdamal.is

Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir af samskiptavef ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum.

Frekari upplýsingar um vefin og póstlisan er að finna á síðunni og hjá umsjónarmanni hennar.

Markaðsstofa Vestfjarða
Jón Páll Hreinsson
s.450 4040
jonpall@westfjords.is





23. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Nýjar skýrslur um ferðamál frá Rannsóknarstofnun ferðamála og Ferðamálastofu

Í haust komu út tvær nýjar skýrslur um ferðaþjónustu á landsbyggðinni sem eru afar áhugaverðar.

Forsíða  
Forsíða "Svæðisbundin Markaðssetning"

Svæðisbundin markaðssetning, aðferðir og leiðir
 var unnin af Rannsóknarmiðstöð Ferðamála á Akureyri fjallar um áhrif svæðisbundinar kynningar á Íslandi og tillögur í þeim efnum. Upphaflega hugmyndin og frumkvæðið af þessarri skýrslu kom frá Markaðsstofu Vestfjarða og sat undirritaður í vinnuhópi sem skilgreindi upphaflegu rannsóknaráætlunina.

Í inngangi skýrslunar segir m.a. "Í þessari skýrslu er markmiðið að skoða hvernig svæðisbundnu markaðsstarfi er háttað og hvernig stilla megi betur saman strengi allra þeirra ólíku þátta sem falla undir ferðaþjónustu á einu svæði. Þessa samþættingu þarf að reyna án þess að fórna eða einfalda um of þá vöru sem í boði er, sem er landið sjálft, menning þess og saga (Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, 2005: 30). Þær rannsóknarspurningar sem hér verður leitast við að svara eru:
  • Hvernig er hlutverki, starfsemi og uppbyggingu markaðsstofa um landið háttað?
  • Hverjir koma að mótun svæðisbundinnar markaðssetningar og með hvaða hætti?

skýrsluna í heildi sinni er að finna hér.

Tillögur nefndar iðnaðarráðherra um aðkomu ríkisins að skipulagi og fjármögnun í ferðaþjónustu var gefinn út í sumar og er hún afrakstur mikillar vinnu forustuaðila í íslenskri ferðaþjónustu.


Þar er að finna athyglisrverðar niðurstöður og get ég ekki staðist freistingu að láta þennan texta úr skýrslunni fylgja með.

"Svæðistengd aðkoma hins opinbera að uppbyggingu ferðaþjónustu

í landinu hefur ekki verið nægilega markviss og sér þessa m.a.

stað í tilviljanakenndri uppbyggingu og ótryggum rekstri markaðsstofa

og upplýsingamiðstöðva víða um land.


Nefndin leggur til að úr þessu verði bætt og rík áhersla verði lögð á

að byggja upp net landshlutastofa með skýrt skilgreindum samningum

til fjögurra ára í senn. Lagt er til að landinu verði skipt upp

í svæði á grunni sameiginlegra, svæðisbundinna hagsmuna og að

aðkoma hins opinbera sé m.a. skilyrt við afgerandi aðkomu sveitarfélaga,

ferðaþjónustufyrirtækja og allra annarra hagsmunaaðila

innan hvers svæðis."

 
Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér.




21. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Námskeið í gerð styrkumsókna - er nú ÓKEYPIS

Fræðslumiðstöð Vestfjarða hefur ákveðið í samráði við kennara námskeiðsins að fella niður þátttökugjöld af námskeiðinu "STYKUMSÓKNIR"

Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur hæfari í að skrifa styrkumsóknir og auka þekkingu þeirra á þeim sjóðum sem hægt er að sækja styrki til. Farið verður í gegnum hvernig á að skrifa umsóknir og hvað einkennir góðar styrkumsóknir. Gert er grein fyrir hvernig umsóknir eru metnar í meginþáttum af þeim sem lesa, meta og ákvarða hverjir hljóta styrki. Umsóknarferlinu og umsóknarvinnunni má skipta niður í hluta og verður fjallað um hvernig ná má sem bestum árangri í hverjum hluta. Þá verður fjallað um helstu sjóði sem í boði eru á Íslandi og erlendis (norrænir og evrópuverkefni) og mismunandi áherslur milli þeirra. Loks verður umfjöllun um áfangaskýrslur og lokaskýrslur. 

Nánari upplýsingar og skráning er að finna á hér.



16. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Ferðakort Markaðsstofu Vestfjarða endurnýjað

Sl. vor gaf Markaðsstofa Vestfjarða út nýtt kort af Vestfjörðum með gagnagrunni á bakhliðinni. Samkvæmt óformlegri könnun meðal upplýsingamiðstöðvar um allt land var kortinu afar vel tekið og var með því efni sem mest var tekið af frá Vestfjörðum.

Eins og áður sagði var þetta í fyrsta sinn sem þetta kort var gefið út. Eins og vill verða með slíkar útgáfur slæddust einhverjar villur inní kortið og betur má ef duga skal. ÉG vill því beina því til ferðaþjónustuaðila að lesa yfir kostið fyrir mig og senda mér tillögur um úrbætur á jonpall@westfjords.is. Nokkrir aðilar hafa þegar sent mér tillögur og ábendingar og kann ég þeim hinar bestu þakkir, en þær gera Markaðsstofu betur kleyft að gera kortið betra.

Ennfremur hefur sú umræða legið í loftinu að gefa fyrirtækjum tækifæri á að kaupa auglýsingar inní kortið, en ljóst að slíkar auglýsingar eru mikils virði, þar sem kortið virðist vera mikið notað af ferðamönnum sem koma inná Vestfirði. gaman væri að fá viðbrögð við þessari hugmynd.

bestu kveðjur,

Jón Páll



16. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Ferðamálaþing 20. nóvember

Ferðamálastofa og iðnaðarráðuneytið gangast fyrir ferðamálaþingi þann 20. nóvember næstkomandi. Þingið verður haldið á Akureyri.


Þingið stendur yfir í einn dag með skemmtun um kvöldið. Það er opið öllum hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu og öðrum sem áhuga hafa á greininni. Verið er að leggja lokahönd á dagskrána en vert er að taka daginn strax frá.




14. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Uppfærsla á Gagnagrunn Ferðamálastofu

www.ferdalag.is notar gagnagrunn Ferðamálastofu
www.ferdalag.is notar gagnagrunn Ferðamálastofu

Nú er komin á fullt skrið vinna við að uppfæra gagnagrunn Ferðamálastofu og handbókina fyrir næsta ár. Þess vegna eru ferðaþjónar beðnir að kíkja í bókina eða vefinn (http://www.visiticeland.com/) og hafa samband við Ferðamálastofu á Akureyri ef upplýsingar vantar inn í grunninn. Minnt er á  að forsenda skráningar í grunninn er að aðilar hafi öll leyfismál í lagi.



2. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Samráðsfundur með markaðsstofum landshlutanna

Blaðamannaheimsóknir eru mikilvægur þáttur í markaðssetningu Vestjfarða og kemur fjöldi ferðamanna hingað fyrir tilstuðlan Markaðsstofu Vestfjarða ár hvert.
Blaðamannaheimsóknir eru mikilvægur þáttur í markaðssetningu Vestjfarða og kemur fjöldi ferðamanna hingað fyrir tilstuðlan Markaðsstofu Vestfjarða ár hvert.


Ferðamálastofa boðaði í liðinni viku til samráðsfundar Ferðamálastofu og markaðsstofanna um landið. Tilgangurinn var meðal annars að fara yfir fyrirhugað markaðsátak á vetrarmánuðum sem kynnt var á dögunum og leggja grunn aða auknu samstarfi Ferðamálastofu og markaðsstofanna.



Eins og fram hefur komið þá ákvað ríkisstjórnin að leggja 50 milljónir í markaðsstarf fyrir markaðssetningu yfir veturinn. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu. Valið var að nota stærstan hluta fjármagnsins á þeim fjórum markaðssvæðum sem þjónað er með flugi á heilsársgrunni, þ.e. í Bandaríkjunum, Bretlandi, Norðurlöndunum og ákveðnum mörkuðum í Evrópu, í samstarfi með íslenskum flugfélögum tveimur sem þjóna landinu allt árið um kring.

Sælt veri fólkið,

Líkt og venjulega á þessum árstíma hef ég fengið beiðni frá útgefendum bókanna Á ferð um Ísland / Around Iceland / Rund um Island um að lesa yfir þjónustuskrána þeirra og koma með leiðréttingar og uppfærslur vegna næstu útgáfu. Það kostar ekkert að vera í þessari skrá, bókunum er dreift ókeypis til ferðafólks og eru mikið notaðar (upplagið er  um 100 þúsund eintök) þannig að það er hagur allra að upplýsingarnar um okkar svæði séu réttar. Þess vegna langar mig að biðja ferðaþjónustuaðila að kíkja í Á ferð um Ísland 2008 og kanna hvort upplýsingar um þá séu ekki örugglega réttar. Ábendingar og leiðréttingar má svo senda til mín í netfangið info@vestfirdir.is eigi síðar en 20.október!

 

Bestu kveðjur

Heimir

1. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Nýjustu fréttir af Vestfirskferdamal.is

Hér fyrir neðan eru fréttir liðinar viku af www.vestfirksferdamal.is. Ef þú villt ekki vera á listanum er hægt að afskrá sig á einfaldan hátt á forsíðunni.

mbk,
Jón Páll Hreinsson
Forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
jonpall@westfjords.is


1. okt 08 - Jón Páll Hreinsson

Villtu komast á sýningu í Þýskalandi 14-16.nóvember!!

Markaðsstofa Vestfjarða hefur lagt sig fram við að vinna með opinberum aðilum sem styðja ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðamálastofa er einn þeirra aðila sem Markaðsstofa vinnur náið með.

Fyrir höndum er sýning sem skrifstofa Ferðamálastofu í Frankfurt, Þýskalandi, er að skipuleggja. Af því tilefni var Markaðsstofa Vestfjarða ásamt fulltrúum annarra landshluta beðin að útvega fulltrúa Vestfjarða til að fara á sýninguna. Að öllu jöfnu væri það hlutverk forstöðumanns að fara á sýninguna, en sökum afar takmarkaðrar þýskukunnáttu er það ekki skynsamlegur kostur.

Þess vegna langar mér að óska eftir sjálfboðaliða til að fara á sýninguna f.h. Markaðsstofa Vestjarða. Nánari upplýsingar um sýninguna er hægt að lesa í bréfi frá Davíð Jóhannssyni forstöðumanni Ferðamálastofu í Þýskalandi.
...
Meira 

30. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Meistaranám í ferðamálafræðum í undirbúningi


Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Hólaskóli - háskólinn á Hólum undirbúa nú sameiginlega framhaldsnám í ferðamálafræði, titlað MTA (e. Master of Tourism Administration) sem er samræmt af Rannsóknarmiðstöð ferðamála. Nemendur munu geta skráð sig í gegnum alla skólana til námsins og hljóta sína prófgráðu að námi loknu frá þeim skóla sem þeir skráðu sig upprunalega.

...
Meira

29. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Reynt að svíkja fé út úr gististöðum

Undanfarna daga hefur borið nokkuð á hótel- og gistirýmispöntunum erlendis frá þar sem uppgefin eru erlend kortanúmer til greiðslu. Síðan er hætt við bókun og viðkomandi seljandi þjónustu beðinn að endurgreiða færslurnar beint með peningasendingu erlendis, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.


Í öllum tilfellum er þetta maður sem kynnir sig sem Kazim Abdul. Lögreglan vill benda hótel- og gistihúsaeigendum og starfsfólki þeirra á að verða ekki við slíkum beiðnum ef hinn minnsti vafi leikur á að um lögmæt viðskipti geti verið að ræða.

 

25. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Markaðsátak í ferðamálum í haust og vetur - 100milljónir í sérstakt átak!

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri á VestnordenÖssur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tilkynnti í gær um að allt að 100 milljónum króna verður varið í sérstakt átak á næstu mánuðum til að markaðssetja Ísland erlendis sem áhugaverðan áfangastað í haust og vetur. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu....
Meira
23. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Fréttir frá vestfirskferdamal.is

Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir frá www.vestfirskferdamal.is, þar sem þitt netfang er skráð í netfangalista. Viljir þú afskrá þig af listanum, er hægt að gera það síðunni með einföldum hætti.

22. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

AtVest gefur út skýrslu um þróun ferðamanna á Vestfjörðum

Atvest hefur tekið saman skýrslu um stöðu ferðamála á Vestfjörðum. Skýrslan er  unnin upp úr tölum frá Hagstofu Ísland og gefur skýra mynd af þróuninni undanfarin ár. Í skýrslunni er farið yfir þróunina á landinu öllu, Vestfirðir skoðaðir í heildina og bornir saman við þróunina á landsvísu og svo er hvert svæði fyrir sig á Vestfjörðum skoðað ítarlega....
Meira

16. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Vestfirðir á Vestnorden

Birna Atladóttir á spjalli á bás Vestfjarða

Ferðaþjónustusýningin Vestnorden stendur nú yfir í Vodafone höllinni í Reykjavík (Íþróttahús Vals). Vestfirðir eru með mikin viðbúnað á sýningunni og leggja Vestfirðinguar undir sig fimm bása á sýningunni. Markaðsstofa Vestfjarða er ásamt Arnkötluverkefn strandamanna og Reykhóla og Ferðamálafélagi Vestur Barðastrandasýslu með þrjá bása. Vesturferðir eru með einn bás og Hótel Látrabjarg einn.

Vestnorden er fagsýning þar sem ferðaþjónustuaðilar frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi hitta ferðaskrifstofur hvaðanaf í heiminum sem selja ferðir til Íslands. Þar er kjörið tækifæri fyrir verstfisrka ferðaþjóna til að hitta ferðaskrifstour og treysta fyrirliggja viðskiptasambönd og búa í hagin fyrir ný tækifæri.

Markaðsstofa Vestfjarða kynnir allt svæðið og ferðaþjóna sem bjóða ferðamönnum þjónustu og hvetur ferðaskrifstofur til að bjóða nýjar og fleiri ferðir til Vestfjarða, en mikilvægt er að veita ferðaskifstofum upplýsingar um Vestfirði og möguleikana sem þeir bjóða uppá.


12. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Vestnorden í næstu viku

 

Nú styttist í Vestnorden, sem er í næstu viku! Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði mun taka saman í möppu, bæklinga og gögn, eins og undanfarin ár, vegna sýningarinnar og er öllum ferðaþjónustuaðilum bent á að hafa samband vegna nýrra bæklinga, nýjunga að breytinga sem verða næsta sumar á info@westfjords.is eða 450 8060.

 

Markaðsstofa Vestfjarða fer á sýninguna í samstarfi við ferðamálafélag V-Barð (breidavik@patro.is) og Arnkatla 2008 (arnkatla2008@strandir.is) og geta ferðaþjónar á þeim svæðum haft samband við þessa aðila til að fá frekari upplýsingar.

 

Vestnorden er fagsýning fyrir ferðaskrifstofur sem eru að selja Ísland, eða hafa hug á að hefja sölu á Íslandsferðum. Hlutverk Markaðsstofa Vestfjarða á sýningunni er að kynna Vestfirði fyrir þessum aðilum og reyna að sannfæra þær um að fjölga ferðum í sölu til Vestfjarða. Ekki er um að ræða kynningu á einstökum fyrirtækjum, heldur kynningu á "vörunni" Westfjords.

 

Möppurnar með upplýsingum um einstök ferðaþjónustufyrirtæki er ætlað til að svara fyrirspurnum um einstök viðfangsefni. T.d. gæti ég verið spurður af erlendri ferðaskrifstofu... "ég er með ferð til Vestfjarða og mig vantar að vita gistimöguleika á Þingeyri". Þá kemur mappan fína að góðum notum.

Annars er öllum velkomið til að hringja í mig í 4504040/8994311 eða senda línu á jonpall@westfjords.is

Jón Páll
 

7. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Markaðsstofa Vestfjarða á Fjórðungsþingi Vestfjarða

Frá Reykhólum

 

Forstöðumaður Markaðsstofa Vestfjarða var með kynningu á starfsemi stofnunarinnar á fjórðungsþingi Vestfirðinga 6.september sl. á Reykhólum

 

Kynningin var kynning fyrir Sveitarstjórnamenn á Vestfjörðum, en Markaðsstofa er að stórum hluta fjármögnuð af sveitarfélögum á Vestfjörðum.

 

Hægt er að nálgast kynninguna hér á síðunni undir liðnum "skráarsafn", eða með því að smella hér.


1. sep 08 - Jón Páll Hreinsson

Viðskiptasendinefnd til Skotlands frá Útflutningsráði

Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd fyrir ferðaþjónustufyrirtæki til Glasgow og Edinborgar
dagana 14.-16. október....
Meira

27. ágú 08 - Jón Páll Hreinsson

Vestfirðir kynntir á stærstu fuglaskoðunarsýningu í heimi

Böðvar og Jón Páll á bás VestfjarðaFulltrúar Vestfjarða kynntu svæðið á fuglaskoðunarsýningunni Birdfair (The British Birdwatching Fair) sem haldin var í Rutland í Englandi fyrir stuttu. Sýningin er sú stærsta sinna tegundar í heiminum en þetta er í fyrsta skiptið sem Íslendingar eiga fulltrúa á sýningunni....
Meira



Þetta fréttabréf er sent á netfangalista frá www.vestfirskferdamal.is. þar er hægt að afskrá þitt netfang á einfaldan hátt.
Góðan daginn,

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, þá hefur Ferðamálasamtök Vestfjarða (FMSV) í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða opnað nýjan upplýsingavef fyrir ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum á www.vestfirskferdamal.is

Þú ert nú skráður á póstlistann sem fylgir þessarri síðu. Ef þú hefur ekki skráð þig sjálfur á www.vestfirskferdamal.is, þá eru allar líkur á því að þú hafir þegar verið skráður á eldri póstlista FMSV sem var sameinaður þessum. Ef þú einhverja hluta vegna ekki vera á listanum, þá getur þú farið á síðuna og afskráð þig á einfaldan hátt á forsíðunni.

Markmiðið með póstlistanum að koma á framfæri efni af vefnum, ásamt því að senda mikilvægar tilkynningar til þeirra sem hafa áhuga á að fylgjst með því hvað er að gerast í ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Ég hvet alla viðtakendur til að hvetja áhugasama og áhrifavalda í ferðaþjónustu á Vestfjörðum og á landsvísu til að skrá sig á listan og taka þátt í umræðunni.

Allar ábendingar um áhugavert efni og það sem betur mætti fara eru vel þegnar og hikið ekki við að senda mér línu á jonpall@westfjords.is.

Vefnum er ritstýrt af Markaðsstofu Vestfjarða í samstarfi við stjórn FMSV.

Bestfjarðakveðjur,

Jón Páll Hreinsson
Forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða

 

 

 

Jón Páll Hreinsson - jonpall@westfjords.is
Manager - Forstöðumaður

--------------------------------------------------------------------

Westfjords Tourism Office - Markaðsstofa Vestfjarða

Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Iceland

Phone: +354 450 4040

Mobile: +354 899 4311

--------------------------------------------------------------------

www.westfjords.is



Fyrri síđa123456789
10
Nćsta síđa
Síđa 10 af 10

Vefumsjón