Fréttamolar
okkur vantar fréttir og fréttamola frá ykkur. Mikilvægt er að það streymi reglulega upplýsingar um viðburði og skemmtilega hluta frá Vestfjörðum. Ég hvet ykkur til að vera duglegri að senda á markaðsstofuna.
Gott dæmi um þörfina er Inspired by Iceland samfélagsmiðlarnir, fréttabréf Flugfélagsins, heimasíðan Westfjords.is og margt fleira.
Ef þið lumið á fréttum, viðburðum eða slíku endilega sendið okkur línu.
Með kærri kveðju,
Gústaf Gústafsson
Markaðsstofu Vestfjarða.
gustaf@westfjords.is
Sími: 662-4156.
Efni fyrir samfélagsmiðla - Inspired by Iceland
ef þið eruð með eitthvað efni, t.d. myndir, vídeó eða jafnvel hlekki sem hægt væri að nota fyrir samfélagsmiðlana (Facebook) þá megið þið endilega senda okkur póst með upplýsingum um það. Vinsamlega flokkið efnið í eftirfarandi þema:
- Matur
- Hönnun
- Hestar
- Tíska
- Tónlist
- Tómstundir
- Fjölskylda
- Bókmenntir
- Stangveiði
- Heilsa
- Ráðstefnur
Þetta þurfa ekki endilega að vera viðburðir heldur bara hlutir sem vekja athygli á svæðinu ykkar og eru áhugaverðir og skemmtilegir.
Efnið verður áframsent á Inspired by Iceland.
Með von um jákvæð viðbrögð,
Heimir Hansson - Upplýsingamiðstöð Vestfjarða.
Sími: 450-8060
Vinsamlega sendi ofangreint á netfangið: info@westfjords.is
Leiðrétting - MV - Texti vegna ferðamála 2011
Kæru vestfirsku ferðaþjónar
Markaðsstofa Vestfjarða (MV) er að vinna að texta í „The Official Tourist Guide 2011“ og „Westfjords Map 2011 (þjónustukort fyrir ferðamenn)“. Ásamt meðfylgjandi texta (sjá hér) verða allir ferðaþjónar sýnilegir sem eru með skráningu í gagnagrunni Ferðamálastofu, sjá www.visiticeland.com. Gert er ráð fyrir að bæklingurinn verði gefinn út á ensku, þýsku og frönsku og Vestfjarðakortið á ensku.
Sami texti verður einnig notaður á nýja heimasíðu Markaðsstofunnar www.westfjords.is. Ef þið hafið í fórum ykkar myndir sem passa við kaflana og þið mynduð vilja að verði nýttar, endilega sendið þær sem fyrst á Markaðsstofu Vestfjarða. Netfang gustaf@westfjords.is
.
Myndabanki MV er nú aðgengilegur á netinu og lykill að honum hér: http://picasaweb.google.com/gustigusta?authkey=Gv1sRgCKXzsJu7lLjzAQ. Samkvæmt samningi MV við ljósmyndara er ykkur heimilt að nota þessar myndir í tengslum við ferðaþjónustu.
Ég vil biðja ykkur um að skoða meðfylgjandi skjal og endilega senda til baka með athugasemdum ef ykkur sýnist svo.
Neðst í skjalinu er að finna tillögur að ferðaáætlunum. Við viljum hvetja ykkur til að útbúa eða koma á framfæri ferðatillögum sem þið hafið undir höndum. Þær koma til með að nýtast í margvíslegum tilgangi við markaðssetningu fjórðungsins.
ATH: Upplýsingum verður að vera búið að koma á framfæri til Markaðsstofunnar á netfangið gustaf@westfjords.is fyrir lok þessarar viku. Alls ekki seinna en föstudaginn 25. febrúar.
Með kærri kveðju,
Sigurður Atlason
Ferðamálasamtök Vestfjarða
www.vestfirskferdamal.is/postlisti
vestfirdir@gmail.com
Gagnagrunnur Ferðamálastofu - myndir vantar
nú er allt á fullu í bókunum og markaðsaðgerðum, auglýsingar að birtast og fólk að leita eftir skemmtilegum áfangastöðum um allan heim. Það er því ekki úr vegi að ræða stuttlega hvað Markaðsstofa Vestfjarða er að bralla.
Markaðsstofan mun taka þátt í Mid-Atlantic ásamt Vesturferðum þann 4.-5. febrúar nk. Að auki taka þátt sameiginlega með hinum Markaðsstofunum í bási Íslandsstofu á ITB í Berlín í mars. Markaðsstofan mun að sjálfsögðu ekki heldur láta sig vanta á Vestnorden í Færeyjum í haust, verið er að huga að annari Perlusýningu, en nánar að aðgerðum síðvetrar og vors.
Mikilvægt er að grunnurinn sé nokkuð þéttur, því erum við nú að útbúa A6 bæklinga á erlendum tungumálum, vonandi náum við ensku, þýsku og frönsku auk Vestfjarðakortsins á ensku. Upplagið verður frekar hátt og tryggt að nóg sé til að dreifa allt timabilið auk þess að eiga lager fyrir sýningar, dreifingu á erlenda söluaðila og í sameiginlegum verkefnum Markaðsstofanna. Textinn er að verða tilbúinn til yfirlestrar og munum við senda ykkur skjal með óskum um athugasemdir fljótlega, endilega lesið vel yfir og ekki hika við að leggja til málanna ef ykkur sýnist svo. Að auki er verið að vinna í því að koma nýrri heimasíðu í loftið. Þeir sem hafa áhuga á að skrifa pistla, innskot, fréttir eða hvað annað á www.westfjords.is eða samfélagsvefina endilega sendið mér línu.
Það er mikilvægt að allir ferðaþjónar sendi mér mynd sem nota má í þjónustugrunni Ferðamálastofu, eins og er má segja að framsetning Vestfirskra ferðaþjóna sé frekar fátæk í samnefndum grunni og má skoða hér:
http://www.visiticeland.com/SearchResults/?area=10&type=0&subtype=0&keyword=By%20Keyword
Við gerð A6 bæklinga og kortsins er notast við upplýsingar Ferðamálastofu eins og fram kom í pósti í desember sl., því er mikilvægt að allir kanni sína skráningu.
Sumarið lítur óneitanlega vel út, mikil aukning er á sætaframboði til Íslands, bæði eru flugfélögin hérlendis að bæta vel við og að auki fleiri erlend félög að sækja um. Vestfirðir hafa undanfarna mánuði fengið feikigóða umfjöllum erlendis, m.a. hjá Lonely Planet og Matador og að auki eru væntanlegir aðilar sem skrifa í Petit Futé sem er annað stærsta ritið um ferðamál í hinum frönskumælandi heimi.
Ég hlakka til að hitta ykkur í vor og sumar og endilega hafið samband, ég er nýr í þessu starfi og allar upplýsingar og/eða ábendingar eru mjög vel þegnar.
Með kærri kveðju,
Gústaf Gústafsson
Markaðsstofu Vestfjarða.
S: 450-4040 & 662-4156
gustaf@westfjords.is
Fýsileikakönnun á köfunarstarfsemi í afþreyingarskini
Kynning meistarprófsritgerða: Fýsileikakönnun á köfunarstarfsemi í afþreyingarskini
Í þessari viku og þeirri næstu fara fram kynningar og varnir meistaraprófsritgerða útskriftarnema í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða. Um er að ræða fimm 30 ECTS eininga ritgerðir sem verða kynntar og þrjár 60 ECTS eininga ritgerðir sem verða varðar.
Fyrstur ríður á vaðið Alan Deverell sem mun kynna ritgerð sína Evaluating the feasibility of establishing a recreational diving sector in the Ísafjarðardjúp area of Iceland. Kynningin fer fram mánudaginn 24. janúar kl. 17.00 í Háskólasetrinu. Hér að neðan má svo sjá dagsetningar annarra kynninga og varna sem fram fara á næstu dögum. Nánari upplýsingar verður hægt að nálgast á vef Háskólasetursins þegar nær dregur.
Kynning Alans Deverell er opin öllum áhugasömum. Janframt verður hún sýnd í vefútsendingu og verður tengill settur upp á vef Háskólasetursins www.uwestfjords.is innan skamms.
Leiðbeinandi verkefnisins er Dr. Marc L. Miller prófessor við University of Washinton í Seattle í Bandaríkjunum. Prófdómari er Brad Barr, ráðgjafi við stefnumótun hjá National Marine Sanctuary verkefninu í Bandaríkjunum.
Ágrip
Eitt megin markmið strandsvæðastjórnunar er að hvetja til sjálfbærrar notkunar á náttúruauðlindum ákveðinna svæða. Sum starfsemi á auðveldara með að ná þessum markmiðum en önnur. Sjávartengd ferðamennska er dæmi um slíka starfsemi, einkum köfun í afþreyingarskini sem jafnframt er sú íþrótt sem vex hvað hraðast í heiminum. Einstök strandlengja Vestfjarða, ríkulegt lífríki og löng hefð fyrir hafsækinni starfsemi, gerir það að verkum að svæðið virðist hafa alla möguleika á að verða framúrskarandi áfangastaður fyrir kafara. Engu að síður eru ákveðnir annmarkar á þessu með tilliti til fjarlægðar, innviða og skorti á þróun í ferðaþjónustu. Í ritgerðinni er fjallað um möguleika þess að koma á fót köfunarstarfsemi í afþreyingarskini á svæðinu við Ísafjarðardjúp sem myndi skapa fjölda nýrra tækifæra fyrir ferðaþjónustuna auk þess að styðja við sjávartengdar rannsóknir og kennslu. Í ritgerðinni koma fram tillögur um þróun á líkani sem byggir á nánu samstarfi milli þessara greina (ferðaþjónustu, rannsókna og kennslu). Í niðurstöðum ritgerðarinnar kemur fram að þótt mögulegt sé að koma á fót árangursríkum köfunargeira byggir það á því að þróuð verði skýr og samþætt ferðamálastefna fyrir svæðið sem veitir nægjanlegan stuðning fyrir fyrirtæki og félög sem kæmu að þessu.
Alan er upprunalega frá Engalndi en býr í suður Frakklandi. Auk þess að ljúka innan skamms MRM gráður í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða er hann menntaður í enskum bókmenntum og kennslufræðum og hefur áralanga reynslu af stjórnunarráðgjöf. Alan hefur innan skamms störf sem verkefnastjóri í Congo við að endurbæta Upemba þjóðgarðinn sem er einn af fáum þjóðgörðum í landinu.
Dagskrá kynninga og varna
27. janúar
Sarah Nebel: The consumption of commercially valuable fish by pinnipeds in Northwest Icelandic waters: Implications of interspecific competition
28. janúar
Manuel Meidinger: A preliminary vulnerability assessment for Ísafjörður, Iceland: Coastal management-options to reduce impacts of sea-level rise and storm surges
1. febrúar
Jonathan Eberlein: The Scarcity and Vulnerability of Surfing Recourses - An Analysis of the Value of Surfing from a Social Economic Perspective in Matosinhos, Portugal
Jamie Landry: Community-Based Coastal Resource Management as a Contributor to Sustainability-Seeking Communities: A Case Study for Ísafjörður, Iceland
2. febrúar
Joshua Macintosh: Public Coastal Access in Nova Scotia’s Coastal Strategy
3. febrúar
Lindsay Church: A Case Study on Snæfellsnes Peninsula, Iceland: Is EarthCheck community standard an effective sustainable tourism marketing tool?
Kveðja,
Ingi Björn Guðnason
Verkefnastjóri
Háskólasetur Vestfjarða
ingi@uwestfjords.is
Sími: 450 3042
GSM: 869 4374
Þriðjudaginn 18. janúar 2011 kl. 20 verður haldinn vinnufundur í Skrímslasafninu á Bíldudal um tækifærin í sjávartengdri ferðaþjónustu.
Fundurinn er haldinn til stofnunar stýrihóps fyrir 12 mánaða samstarfsverkefni. Á fundinum verður reynt að setja saman öflugt verkefnateymi sem hefur það markmið að fá fram hugmyndir íbúa og ferðaþjóna hvernig best er að vinna sameiginlega að markaðssetningu sjávarþorpanna Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur með áherslu á tækifærin í sjávartengdri ferðaþjónustu og það sem þorpin hafa upp á að bjóða fyrir ferðamenn.
Tækifærin í sjávartengdri ferðaþjónustu eru fjölmörg. Þar má helst nefna: Siglingar, kajakferðir, sjóstangaveiði, hestaferðir, gönguferðir, fuglaskoðun, saga sem tengist sjávarnýtingu og sjósókn, áhersla á nýtingu sjávarfangs á veitingastöðum, minjagripir, matarminjagripir, fræðsluferðir og margt fleira. Nú þegar er verið að vinna að fjölmörgum verkefnum sem snúa að þessum tækifærum en hlutverk vinnuhópsins er að vinna sameiginlega að því að undirbúa, þróa og setja fram heilstæðar hugmyndir til að markaðssetja sameiginlega það sem þorpin hafa upp á að bjóða. Í þessu felst að skrifa texta, ferðalýsingar, útvega ljósmyndir og vinna að verkefnum sem nýtast til að draga ferðamenn inn í þorpin og gera þau áhugaverðari sem áfangastaði og lengja dvöl ferðamanna. Markmiðið er að í lok verkefnatímans sé búið að skilgreina styrkleika þorpanna, sérstöðu hvers og eins þeirra og safna saman upplýsingum um sjávarþorpin á suðursvæðinu sem hægt er að nýta til að markaðssetja svæðin sem áhugaverðari áfangastaði á Vestfjörðum. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að forgangsraða verkefnum og hvetja til fegrunar- og umhverfisverkefna í nærumhverfi. Efnið verður notað til að samhæfa markaðsaðgerðir fyrir Vestfirði í heild á vegum Markaðsstofu Vestfjarða. Verkefnið verður unnið á 12 mánuðum.
Samstarfsaðilar: Atvest, Nave, Markaðsstofa Vestfjarða og sveitarfélögin á svæðinu.
Að fundinum standa Guðrún Eggertsdóttir verkefnastjóri hjá Atvest og Georg Haney, nýr starfsmaður Náttúrustofu Vestfjarða í Vesturbyggð. Hann kemur frá Þýskalandi og hefur búið á Íslandi í fjögur ár. Hann er útskrifaður með Mc. gráðu í umhverfisfræði frá Háskóla Íslands. Hann mun sjá um rannsóknir tengdar mengun, fiskeldi og kræklingarækt og rannsóknir á svæðinu vegna sjálfbærrar nýtingar, svo sem ferðamennsku.
Gleðilega hátíð
Það er mikið um að vera hjá Markaðsstofu Vestfjarða þessa dagana, verið er að vinna að útgáfumálum fyrir árið 2011. Gert er ráð fyrir útgáfu á A6 bæklingum á ensku, frönsku og þýsku auk endurbætts ferðakorts. Heimasíðan verður endurnýjuð á fyrsta ársfjórðungi og þá tengd í rauntíma við Ferðamálastofu.
Endurútgáfa íslenska bæklingsins er einnig líkleg enda voru viðtökur á honum mjög jákvæðar. Það var eftirtektarvert hversu margir nálguðust bás Markaðsstofunnar á Menningarnótt til að þakka fyrir þann bækling sérstaklega.
Mikilvægt er að allir ferðaþjónar athugi hvort upplýsingar eru rétt skráðar í gagnagrunni Ferðamálastofu því við sækjum upplýsingar þaðan.
Árið 2011 verður spennandi ár í Vestfirskri ferðaþjónustu, mikið hefur gerst á seinni hluta þessa árs sem gefur vonir um bjartsýni og það er jákvætt að kveðja árið með slíka hluti í huga.
Bestu óskir um gleðilega hátið og farsæld á nýju ári.
Gústaf Gústafsson
Markaðsstofu Vestfjarða.
Uppfærsla þjónustukorts
Fundi um heilsutengda ferðaþjónustu frestað!
Gert er ráð fyrir að fundurinn verði haldinn um miðjan janúar, nánar auglýst síðar.
Vinnufundur með Magnúsi Orra Schram - formanni Samtaka um heilsuferðaþjónustu
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Markaðsstofu Vestfjarða á netfangið:
travel@westfjords.is
eða hringið í síma 450-4040.



