Kort markađsstofu fyrir 2009
Hægt er að skoða kortið hér. Allar ábendingar eru velkomnar, en gert er ráð fyrir að kortið fari í prentun í næstu viku.
Aðeins er eftir að ganga frá einu máli. Þetta árið getur ferðaþjónustuaðilar keypt auglýsingu inní kortið. Í próförkinni eru dálkar þar sem gert er ráð fyrir lítlum auglýsingum. Tvær stærðir eru í boði 45x40mm og 92x40mm.
Verð per dálk er 15.000.- Þetta er afar góð auglýsing, þar sem kortið fékk afar góðar viðtökur sl. sumar og segja má að flestir ferðamenn sem eru á leið til Vestfjarða næsta sumar munu hafa slíkt kort í fórum sýnum.
Fyrsti koma fyrstir fá. sendið tölvupóst á jonpall@westfjords.is til að pannta pláss.
kv, jonpall
Ađalfundur Ferđamálasamtaka Vestfjarđa um nćstu helgi!
Í tengslum við aðalfundinn verður haldið málþing þar sem fjallað verður um börn og ferðalög. Einnig verður kynning á helstu nýjungum í ferðaþjónustu á Ströndum og farið verður í skemmti- og skoðunarferð um nágrenni Drangsness.
Ferðamálasamtök Vestfjarða eru samtök hagsmunaaðila í ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Félagar í samtökunum geta verið sveitarfélög á Vestfjörðum, einstaklingar, fyrirtæki eða félög sem skilgreina sig í ferðaþjónustu. Eitt atkvæði í samtökunum tilheyrir hverjum félaga á aðalfundi. Fullgildur félagi telst sá er sótt hefur um aðild til stjórnar og hún samþykkt og fært á félagaskrá. Þá þarf árgjald yfirstandandi árs að vera greitt.
Aðalfundurinn og málþingið er öllum opið og það eru allir sem hafa áhuga á uppbyggingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum hvattir til að mæta og taka þátt í dagskránni um þessa skemmtilegu helgi sem er framundan hjá Ferðamálasamtökunum. Allar nánari upplýsingar fást hjá Sigurði Atlasyni í síma 897 6525 eða netfangi arnkatla2008@strandir.is. Endanleg dagskrá fundarins og viðburðum honum tengdum er hægt að sjá hér.
Síđustu göngukortin komin út
Leiđéttar upplýsingar vegna gististađa á ađalfundi FMSV
Í tilkynningu um gististaði á Drangsnesi og nágrenni slæddist inn villa með röngu símanúmeri hjá Gistiþjónustu Sunnu á Drangsnesi. Síminn þar er 451 3230.
Gististaðir á Drangsnes og nágrenni
Malargisting, Drangsnesi – S: 451 3238
10 tveggja manna herbergi m/ baði.
4 tveggja manna herbergi í húsi með sameiginlegri aðstöðu.
Gistiþjónusta Sunnu, Drangsnesi – ein stúdíóíbúð – S: 451 3230
Ferðaþjónustan Bær III, tvær sumarhúsaíbúðir – S: 453 6999
(3 km utan við Drangsnes)
Fyrir 8-10 manns samtals.
Hótel Laugarhóll, Bjarnarfi rði – S: 451 3380 (20 mín akstur)
Steinhúsið Hólmavík – S: 856 1911 (25 mín akstur)
Gistiheimilið Borgabraut 4, Hólmavík – S: 451 3136 (25 mín akstur)
Ferðaþjónustan Kirkjuból – S: 451 3474 (35 mín akstur)
Dagskrá ađalfundar og málţings FMSV
http://vestfirskferdamal.is/skraarsafn/skra/38/
Fréttabréf Ferđamálasamtaka Vestfjarđa og Markađsstofu Vestfjarđa
Fréttabréf Ferðamálasamtaka Vestfjarða og Markaðsstofu Vestfjarða |
27. feb 09 - Sigurður Atlason
Hlutfallslega mest fjölgun gistinátta á Vestfjörðum á síðasta ári
Á Drangsnesi hefur verið unnið myndarlega að fjölgun gistirýma undanfarin misseri
Gistinóttum árið 2008 fjölgaði í flestum landshlutum árið 2008. Þetta kemur fram í nýútgefinni skýrslu Hagstofunnar þar sem rýnt er í gistináttatölur í ferðaþjónustu á Íslandi. Aukningin var langmest á Vestfjörðum eða 16,4%. Aðrir landshlutar voru með fækkun um tæp 3% upp í aukningu um tæp 8%. Gistinóttum hlutfallslega mest milli ára á Vestfjörðum eða um 11,8%. Hlutallslega meiri aukning var í gistinóttum á hótelum og gistiheimilum en á tjaldsvæðumá Vestfjörðum en fækkun var um að ræða í gistinóttum á tjaldsvæðum sem nam 2% á milli ára. Þetta kemur fram í gistináttaskýrslu sem Hagstofan gaf út í dag.
Skýrsluna er hægt að nálgast í heild með því að smella hér.
26. feb 09 - Jón Páll Hreinsson
Þátttaka ferðaþjóna frá Vestfjörðum í sýningunni "Ferðalög og Frístundir" 8.-10.maí
Bás Vestfjarða á Ferðatorgi 2006. takið eftir vörðunni uppá básnum... forstöðumaður MV fær enn verk í bakið þegar hann sér þessa mynd.
Sýningin Ferðalög og frístundir verður haldin í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal dagana 8.-10. maí 2009. Vestfirðir verða með bás á sýningunni og mun Markaðsstofa Vestfjarða skipuleggja þátttöku Vestfjarða á sýningunni.
Undanfarin ár, hefur þátttaka á sýningum sem þessarri byggst á beinni þátttöku ferðaþjónustuaðila. Þ.e. fulltrúar fyrirtækja hafa staðið vaktina á Vestfjarðabásnum á meðan sýningunni stendur. Markaðsstofa hefur komið með hugmyndir að útliti á básnum og séð um framkvæmdina.
þetta er einmitt það sem þessi frétt gengur út á. Kanna vilja og áhuga ferðaþjóna á að koma og standa vaktina... kynna þannig Vestfirði og sjálfan sig fyrir þeim gestum sem koma á sýninguna. Jafnframt langar mig að fá hugmyndir frá ykkur að skipulagi af básnum.
Þeir sem hafa áhuga og vilja taka þátt, hikið ekki við að hafa samband við mig í 450 4040 eða jonpall@westfjords.is
Almennar upplýsingar um sýninguna:
"Sýningin Ferðalög og frístundir verður haldin í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal dagana 8.-10. maí 2009. Þar mun sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum, frístundum og afþreyingu, innanlands og utan. Sýningin verður opin almenningi jafnt sem fagaðilum. Fjölmörg sóknarfæri eru í ferðaþjónustunni og gefst hér einstakt tækifæri fyrir fagaðila jafnt sem almenning að kynna sér þá möguleika sem í boði eru.
Samhliða Ferðalögum og frístundum verður haldin sýningin Golf 2009, þar sem hægt verður að nálgast á einum stað allt það nýjasta sem snertir golfíþróttina. Kjarninn í sýningunni verður Ferðatorgið, þar sem ferðamálasamtök landsins kynna hver sinn landshluta."
25. feb 09 - Jón Páll Hreinsson
Heilsa - Upplifun - Vellíðan, Ráðstefna um heilsuferðaþjónustu 18.mars
það er heilsa að liggja í pottinum á Drangsnesi!!
Miðvikudaginn 18. mars gengst iðnaðarráðuneytið í samstarfi við og Ferðamálastofu, Háskólann á Hólum og Vatnavini fyrir ráðstefnu um heilsuferðaþjónustu undir yfirskriftinni Heilsa - Upplifun - Vellíðan. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica kl. 13-17.
Verið er að leggja lokahönd á dagskrána en mörg áhugaverð erindi verða flutt. Inngangserindið flytur Melanie Smith frá Corvinus University í Budapest og nefnist það "Health Tourism Trends: Back to the Future." Einnig ávarpar Össur Skarphéðinsson, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, ráðstefnuna. Ráðstefnustjóri Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála. Í lok ráðstefnu verða pallborðumræður sem Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, stjórnar. Dagskrá ráðstefnunnar í heild verður birt hér á vefnum á næstu dögum.
Opin kynningarfundur hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða um "Færni í Ferðaþjónustu"
Laugardaginn 7. mars kl 13:30 stendur Fræðslumiðstöð Vestfjarða fyrir opnum kynningarfundi á námskránni Færni í ferðaþjónustu.Um er að ræða 60 kennslustunda nám sem ætlað er bæði þeim sem nú þegar starfa innan ferðaþjónustunnar og þeim sem hafa áhuga á að starfa innan greinarinnar, til dæmis sumarstarfsfólki.
Námið má meta til allt að 5 eininga í framhaldsskólum.
Kynningin verður í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði og í gegnum fjarfundabúnað til Hólmavíkur og Patreksfjarðar, en fyrirhugað er að bjóða námið einnig á þessum stöðum með fjarkennslu.
Allir velkomnir.
17. feb 09 - Jón Páll Hreinsson
Próförk af nýju korti Markaðsstofunnar - ÖLLUM FRJÁLST AF KOMA MEÐ ATH...
verður þetta forsíðumyndiin í ár?
...eða þessi?
...jafnvel þessi.
Í sumar verður gefið út kort af Vestfjörðum með þjónustuupplýsingum á bakhlið. nú er fyrsta próförk af 2009 kortinu tilbúið og er hægt að skoða það hér.
Öllum er frjálst að skoða og fara yfir kortið til að koma með athugasemdir til mín á jonpall@westfjords.is
Sumt er þó augljóslega óunnið, en allar hugmyndir eru vel þegnar.
mbk, jonpall
Fréttabréf Ferđamálasamtaka Vestfjarđa 27.desember
| Fréttabréf frá Vestfirskferdamal.is 27.JANÚAR, 2008 Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir af samskiptavef ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum. Frekari upplýsingar um vefin og póstlistann er að finna á síðunni og hjá umsjónarmanni hennar. Markaðsstofa Vestfjarða Jón Páll Hreinsson s.450 4040 jonpall@westfjords.is |
22. jan 09 - Jón Páll Hreinsson
Markaðsstofan fer á MidAtlantic ferðaráðstefnu Icelandair
Markaðsstofustjóri á MidAtlantic 2008Daganna 5.-6.febrúar nk. tekur Markaðsstofa Vestfjarða þátt í ferðaráðstefnunni MidAtlantic á vegum Icelandair.Markmið ráðstefnunnar er að leiða saman erlendar ferðaskrifstofur og innlendar ferðaskrifstofur og áhrifaaðila í ferðaþjónustu á Íslandi.
Markaðsstofunni er boðið að taka þátt af Icelandair og hefur gert það undanfarin ár með ágætum árangri.
Heimasíða ráðstefnunnar er að finna á www.icelandair.is/midatlantic
Dagskrá hennar er sem hér segir (n.b. dagskráinn er sett fram fyrir erlenda gesti hennar):
Thursday 05 February 2009
15:00 - 17:00 City Sightseeing tours for participants arriving morning and early afternoon
19:00 - 21:00 Get-together and official opening with Iceland touch at Reykjavik City Hall. Light refreshments are served, Business attire. Remainder of evening free.
Friday 06 February 2009
Breakfast at your hotel then transport to Laugardalshöll "Sportshall" for the days programme:
08:45 - 09:00 Icelandair presentation
09:00 - 09:30 Iceland presentation
09:30 - 13:00 Europe and USA & Canada presentations
13:00 - 14:20 Lunch
14:30 - 17:30 Workshop
20:00 Icelandair evening at Broadway. Dresscode - smart/casual
Saturday 07 February 2009
Breakfast at your hotel
09:30 - 12:00/14:00 Choice of excursions - see excursions options list. Lunch on your own
15:00 - Transfer to the one and only Blue Lagoon and the chance to have a dip before dinner! Dresscode - smart/casual
18:00 - Dinner and entertainment.
Sunday 08 February 2009
Morning flights back to Europe. Afternonon flights to USA, Copenhagen, Oslo and Stockholm
Hlutverk markaðsstofunnar er að standa á bás á sýningarsvæði í Laugardalshöll þar sem erlendir fulltrúar ferðaskrifstofa fara á milli og kynna sér hvað er að gerast í Íslenskri ferðaþjónustu. Ég vill því hvetja alla ferðaþjóna á Vestfjörðum til að hafa samband við mig ef þið viljið kynna ykkur þessa ráðstefnu og inntak kynningar Markaðsstofunnar og einnig að koma til mín upplýsingum um hvað er nýtt að gerast, bæði fyrir sumarið 2009 og væntalegar framfarir fyrir 2010.
bestu kveðjur,
Jón Páll
19. jan 09 - Jón Páll Hreinsson
Bókunartímabil framundan hjá erlendum ferðaskrifstofum
Frá Rauðasandi. ljósmynd: Ágúst Atlason
Núna er sá tími sem erlendar ferðaskrifstofur eru að taka við bókunum frá sýnum viðskiptavinum í ferðir til Íslands næsta sumar. Þær fréttir sem berast frá markaðinum, eru að bókanir ganga misvel, sumstaðar vel, en annarsstaðar fara bókanir hægar af stað en oft áður.
Núna er enga að síður mikilvægt að halda Vestjförðum á lofti við erlendar ferðaskrifstofur. ég hvet því alla ferðaþjóna sem eru, eða hafa verið í samskiptum við Ferðaskrifstofur að nota tækifærið á minna á ykkur og Vestfirði í leiðinni.
Ekki væri verra, ef það henntar í ykkar tilfellum, að minna á þjónustu Markaðsstofu Vestfjarða við erlendar ferðaskrifstofur. Markaðsstofan getur skaffað ókeypis ljósmyndir af Vestfjörðum og aðstoðað við að finna kynningarefni fyrir ferðaskrifstofur. Skipulagning á kynningarferðum til Vestfjarða eru jafnframt áhugaverður kostur fyrir ferðaskrifstofur sem vilja kynna sér Vestfirði sérstaklega með frekari viðskipti í huga.
Svo er líka mikilvægt að senda jákvæð skilaboð út á markaðinn. Að á Vestfjörðum séu allir hressir og hér komi allt til með að "fúnkera" í sumar og gott betur en það!
Markaðsstofa Vestfjarða er reglulega í sambandi við fjölda ferðaskrifstofa erlendis til að bjóða þjónustu sýna og biðja um gott veður fyrir Vestfirði. Sem dæmi um ferð sem erlend ferðaskrifstofa er selja sem inniheldur daga á Vestfjörðum er Franska ferðaskrifstofan ISLAND TOURS í frakklandi, en hér eru tvær síður úr nýjum bæklingi frá þeim.
Ferð 1
Ferð 2
16. jan 09 - Jón Páll Hreinsson
Heydalur hlýtur viðurkenningu frá "Better Business" og Ferðaþjónustu Bænda
Heydalur er í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp þar sem þessi mynd er tekin í fjöruborðinu.
Staðsetning: Mynd tekin af www.heydalur.is
Heydalur hlaut nýlega ásamt fjórum öðrum gististöðum Ferðaþjónustu bænda viðurkenningu fyrir frábæra þjónustu sumarið 2008. Viðurkenningin er í tengslum við gæðaverkefnið ,,Gerum góða gistingu betri "á vegum Ferðaþjónustu bænda og Better Business. Verkefnið fólst í því að þrisvar yfir sumarið kom ,, leynigestur"sem gisti og borðaði og tók staðinn út samkvæmt fyrirfram ákveðnum stöðlum. Niðurstöðurnar voru kynntar hverju fyrirtæki fyrir sig á netinu mánaðarlega svo tækifæri gæfist til að bæta þjónustu.
Þessi verðlaun eru mikil viðurkenning fyrir Stellu Guðmundsdóttir og starfsfólk hennar í Heydal og óskar Markaðsstofa Vestfjarða henni til hamingju með þennan árangur.
13. jan 09 - Jón Páll Hreinsson
fræðslu-og ráðgjafarverkefnið - Komdu í Land!
ATH. NÁMSKEIÐINU VAR FRESTAÐ VEGNA VEÐURS TIL 12. - 13. FEBRÚAR!!
í samvinnu við Cruise Iceland standa fyrir fræðslu-og ráðgjafarverkefni sem kallast Komdu í land ! Tilgangur þeirrar vinnu sem felst í verkefninu er að skoða möguleika á hverjum stað fyrir sig og vinna í sameinungu að því hvernig hægt er að byggja upp aukna þjónustu fyrir farþega skemmtiferðaskipa og áhafnarmeðlimi sem ekki eru að fara í skipulagðar ferðir.
Veitingastaðir, Verslanir, Söfn og önnur afþreying, Leigubílstjórar og allir þeir sem koma að þjónustu við ferðamenn til Ísafjarðar eru hvattir til að kynna sér námskeiðið.
Vinnufundir verða haldnir á Ísafirði dagana 22 og 23 janúar.
Gjaldi fyrir þátttöku er mjög stillt í hóf eða kr. 15.000,- fyrir þátttakanda.
Nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorleifsdóttir hjá Atvest í síma 450 3053 eða Björn H. Reynisson hjá Útflutningsráði í síma 511 4000.
12. jan 09 - Jón Páll Hreinsson
Fyrstu námskeið vormisseris hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða eru að hefjast
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Fyrstu námskeið vormisseris hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða eru að hefjast. Þar er meðal annars að finna námskeið sem gætu átt erindi við fólk í ferðaþjónustu. Hér eru dæmi um nokkur námskeið:
Fimmtudaginn 22. janúar hefst Enska II, námskeið fyrir þá sem hafa einhvern grunn í ensku en vilja auka orðaforða sinn og styrkja sig í talmáli.
Mánudaginn 26. janúar hefst Enska I, námskeið fyrir þá sem hafa lítinn grunn í ensku en vilja auka skilning sinn á málinu og hæfni til að eiga samskipti við aðra á ensku.
Miðvikudaginn 28. janúar hefst Bókhald, námskeið ætlað þeim sem sjá um bókhald í minni fyrirtækjum eða ætla sér að gera það. Einnig hentugt fyrir einstaklinga með sjálfstæðan atvinnurekstur sem vilja vera sjálfbjarga með bókhaldið.
Fimmtudaginn 29. janúar hefst Gull í mund - Excel. Þar er um að ræða stutt morgunnámskeið fyrir þá sem hafa notað eldri útgáfur af Excel en eru búnir að skipta yfir í Office 2007.
Mánudaginn 2. febrúar hefst Tölvur II, námskeið fyrir þá sem eru farnir að nota Office 2007 eða eru að fara að skipta yfir. Gert ráð fyrir að þátttakendur hafi einhverja reynslu af tölvunotkun.
Fimmtudaginn 5. febrúar hefst Þýska - framhald, námskeið fyrir þá sem hafa góðan grunn í þýsku en vilja ná meiri færni í málinu.
Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Fræðslumiðstöðvarinnar www.frmst.is eða í síma 456 5025.
Vert er að benda áhugasömum á að stéttarfélög styrkja í allmörgum tilfellum félagsmenn sína til að sækja námskeið og er öllum bent á að kynna sér þann möghuleika hjá stéttarfélögum sínum.
Fréttabréf Vestfirskferdamal.is
| Fréttabréf frá Vestfirskferdamal.is 12.desember, 2008 Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir af samskiptavef ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum. Frekari upplýsingar um vefin og póstlisan er að finna á síðunni og hjá umsjónarmanni hennar. Markaðsstofa Vestfjarða Jón Páll Hreinsson s.450 4040 jonpall@westfjords.is |
12. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Styrkir til úrbóta í umhverfismálum 2009
Dynjand er þeirra ferðamannastaða sem hafa fengið styrk frá Ferðamálastofutil úrbóta. Mynd: Ágúst Atlason
Ferðamálastofa hefur auglýst eftir styrkjum til úrbóta í umhverfismálum fyrir árið 2009. Styrkir skiptast sem fyrr í þrjá meginflokka og sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að bættu aðgengi að áningastöðum.
Eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna, innlendra sem erlendra, er íslensk náttúra. Stefna íslenskra stjórnvalda er að ferðaþjónustan í landinu starfi sem mest eftir hugmyndafræði um sjálfbæra ferðaþjónustu. Liður í því er markviss uppbygging og fyrirbyggjandi aðgerðir til verndunar á íslenskri náttúru.
Frekari uplýsingar um hverjir meiga sækja um og hvernig er í fréttinni allri sem hægt er að skoða með því að ýta á "meira"
11. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Verkefni um sjávartengda ferðaþjónustu
Sjóstangveiði er dæmi um sjávartengda ferðaþjónustu. mynd: fisherman.is
Á vef byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) kemur fram að verkefnið "Marine-Based Employment Opportunities (MBEO)", sem aðilar frá Íslandi, Írlandi og Noregi eiga aðild að, hafi nýlega forverkefnisstyrk frá Norðurslóðaáætluninni (NPP).
Þar kemur fram að "Það snýst um sjávartengda ferðaþjónustu. Að verkefninu standa aðilar frá land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands, Háskólanum í Finnmörku í Norður-Noregi, og Teagasc-rannsóknastofnuninni á Írlandi, en síðastnefnda stofnunin leiðir verkefnið. Samstarfsaðilar í hverju landi eru allmargir og koma úr röðum fyrirtækja, atvinnuþróunarfélaga, sveitarfélaga og annarra sem láta sig varða atvinnumál og byggðaþróun í sjávarbyggðum þátttökulandanna.
Á Íslandi verða vestfirskar sjávarbyggðir í brennidepli, enda sjávartengd ferðaþjónusta í mikilli uppbyggingu á Vestfjörðum. Samstarfs hefur þegar verið leitað við ýmis fyrirtæki og einstaklinga í ferðaþjónustu á svæðinu, sem hafa sýnt því mikinn áhuga. Háskólasetur Vestfjarða og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða verða einnig aðilar að verkefninu. Í lok nóvember komu verkefnisaðilar frá aðildarlöndunum þremur saman í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði til að undirbúa ítarlega umsókn til NPP um þróunarverkefni í framhaldi af forverkefninu.
Þróunarverkefnið beinist að áherslu 1 í Norðurslóðaáætlun 2007-2013, sem er "Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni svæða". Því verður ætlað að leiða í ljós tækifæri til nýsköpunar og verðmætaaukningar í greinum sem tengjast nýtingu sjávarauðlinda; að tengja saman menningararfleifð og staðbundna þekkingu heimafólks á auðlindum sjávar við sérfræðiþekkingu; að greina efnahagsleg áhrif, félagsleg áhrif og umhverfisáhrif af sjávartengdri ferðaþjónustu; og að stuðla að yfirfærslu þekkingar á þessu sviði til annarra byggðarlaga á því svæði sem Norðurslóðaáætlunin tekur til. Vonast er til að upp úr verkefninu spretti öflug samstarfsnet og hugmyndir um vörur og þjónustu sem þróa mætti áfram. Einnig er ætlunin að standa fyrir námskeiðum og ráðstefnum og almennt að leitast við að tryggja að nýsköpun í sjávartengdri ferðaþjónustu stuðli að sjálfbæru atvinnulífi og jákvæðri byggðaþróun."
Þeim sem áhuga hafa á að fræðast frekar um verkefnið er bent á að hafa samband við Karl Benediktsson, prófessor (kben@hi.is) eða Katrínu Önnu Lund, lektor (kl@hi.is).
10. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Samvinnuverkefni á Ísafirði - Fundir og Ráðstefnur
Ráðstefnum og fundum fylgir gjarnan útivera með í bland. Mynd: Ágúst Atlason
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur verið að skoða möguleika til aukinna funda og ráðstefnuhalda á Ísafirði og nágrenni. Það þykir ljóst að sá markaður hefur ekki náð að teygja sig næganlega vestur og teljum við að í samvinnu við ferðaþjónustu og önnur fyrirtæki sé grundvöllur til að leita leiða við að þróa slíkan markað enn betur hér á Ísafirði.
Svæðið hefur uppá einstaklega mikið að bjóða og með samhentu átaki hagsmunaaðila er hægt að mynda öflugan hóp sem vinnur saman í átt að markmiðunum. Tilgangur slíkrar samvinnu væri auðvitað sá að auka veltu og arðsemi þeirra sem taka þátt í verkefninu og auka nýtingu þeirra sérstaklega á jaðartímum, s..s gististöðum, matsölustöðum, söfnum og verslunum.
Það er svo von Atvest að þetta sé einungis byrjunin á stærra verkefni sem feli í sér fleiri staði á Vestfjörðum sem ákjósalegan kost til funda og ráðstefnuhalda.
Fyrirhugað er að hittast um miðja næstu viku, fá okkur heitt kakó og smákökur og koma okkur í jólaskap og ræða hvaða leiðir mögulegt sé að fara í þessum efnum. Allir áhugasamir aðilar og þeir sem telja sig hafa hag af slíkri samvinnu er bent á að hafa samband við Ásgerði Þorleifsdóttur hjá Atvest í síma 450 3053 eða á netfangið asgerdur@atvest.is
10. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Krásir matur úr héraði
Pönnsur
Impra á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum um þátttöku í verkefninu Krásir - matur úr héraði sem er fræðslu- og þróunarverkefni í svæðisbundinni matargerð.
Þátttakendur fá fræðslu og faglegan og fjárhagslegan stuðning við að þróa hugmynd að matvöru í markaðshæfa vöru.
Þátttaka í verkefninu er opin einstaklingum og litlum fyrirtækjum á landsbyggðinni eða samstarfshópum einstaklinga og lítilla fyrirtækja, sem óska eftir að vinna saman við þróun á mat-vörum.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á www.impra.is og www.icetourist.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2009.
8. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Gistinætur á hótelum í október fækkar á milli ára á landsvísu

Heimild: www.hagstofa.is
Í nýúgefinni skýrslu um gistinætur á Íslenskum hótelum frá Hagstofu Íslands, kemur fram að fækkun hefur orðið á gistinóttum í Október, miðað við síðasta ár.
á vef Hagstofunnar kemur fram að... "Gistinætur á hótelum í október síðastliðnum voru 103.700 en voru 108.800 í sama mánuði árið 2007, sem er því tæplega 5% samdráttur milli ára. Á Höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 83.100 í 76.400 eða um 8%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum úr 6.400 í 5.100 eða um 20% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 1%, úr 7.400 í 7.300. Gistinóttum fjölgaði hinsvegar umtalsvert á Austurlandi og Suðurlandi í október miðað við október 2007. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi um tæp 35%, eða úr 2.100 í 2.900. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum úr 9.800 í 12.100 milli ára eða um 24%."
Eins og kemur fram í þessum texta eru tölur frá Vestfjörðum teknar saman með gistinóttum frá Suðrnesjum og Vesturlandi og því ómögulegt að álykta neitt um fjölgun, eða fækkun, á Vestfjörðum. Jafnframt er tekið frá á vef hagstofunnar að ..."
"hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann."
Á meðfylgjandi súluritum má sjá að fækkunin má eingöngu rekja til færri gistinátta hjá Íslendingum, á meðan gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgar, bara ekki nægilega mikið til að yfirvinna fækkunina hjá Íslendingunum.
NÝR GREINAFLOKKUR á vestfirskferdamal.is - Leyfismál í ferđaţjónustu á Vestfjörđum
Í dag var settur á laggirnar nýr greinaflokkur á www.vestfirskferdamal.is um leyfismál í ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Löngum hefur það loðað við ferðaþjónustu á Íslandi að leyfi til að stunda ferðaþjónustu af ýmsu tagi séu mörg og flókin viðureignar. Ekki verður lagt á það mat hér hvort þær fullyrðingar eigi við rök að styðjast, heldur reynt að gera þessum málum skil í greinarflokki sem tekur á algengustu leyfum og hvernig Vestfirskir ferðaþjónustufyrirtæki geta og þurfa að snúa sér til að verða sér út um tilskylin leyfi.
Greinarnar eru samvinnuverkefni Upplýsingamiðstöðvar Vestfjarða, Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og Markaðsstofu Vestfjarða.
Greinarflokkurinn verður sífellt í vinnslu og munu bætast við hann greinar næstu daga, vikur og mánuði, eftir því sem þurfa þykir. Allar ábendingar eru vel þegnar og ekki væri verra ef ferðaþjónar mundu deila með okkur reynslu sinni af því að verða ér út um tiltekin leyfi, þannig að hægt væri að nýta þessa reynslu í þágu allra ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum.
Hægt er að skoða greinarnar undir flokknum "Leyfismál" vinstra megin á síðunni. sjá nánar á www.vestfirksferdamal.is
mbk,
Jón Páll Hreinsson
Forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
450 4040 / 899 4311
Fréttabréf Ferđamálasamtaka Vestfjarđa 27.nóvember
| Fréttablað frá Vestfirskferdamal.is 27.nóvember, 2008 Hér fyrir neðan eru nýjustu fréttir af samskiptavef ferðaþjónustuaðila á Vestfjörðum. Frekari upplýsingar um vefin og póstlisan er að finna á síðunni og hjá umsjónarmanni hennar. Markaðsstofa Vestfjarða Jón Páll Hreinsson s.450 4040 jonpall@westfjords.is |
Rannsókn á hegðun ferðamanna á Vestfjörðum kynnt í Vísindaporti
Ferðamenn á Drangajökli
Í Vísindaporti Háskólaseturs Vestfjarða föstudaginn 28. nóvember kl 12.10 munu Albertína Friðbjörg Elíasdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir kynna niðurstöður könnunar sem gerð var meðal ferðamanna á Vestfjörðum sumarið 2008. Albertína og Íris stunda meistaranám við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands ásamt því að starfa við Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Könnunin var unnin í samstarfi Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands og Markaðsstofu Vestfjarða og var styrkt af Vaxtasamningi Vestfjarða. Starfsmenn setursins fóru víða um Vestfirði og lögðu fyrir ferðamenn spurningalista þar sem meðal annars var spurt um ástæður komu, upplýsingaöflun, nýtingu og ánægju með þjónustu á Vestfjörðum sem og ánægju með ferðina í heild.
Niðurstöðurnar gefa mynd af því hvernig ferðamenn koma til Vestfjarða, hvar þeir eru líklegir til að leita sér upplýsinga og hverju þeir hafa helst áhuga á að kynnast eða upplifa á ferð sinni um Vestfirði. Þá er leitast við að skýra hvaða þættir hafa helst áhrif á upplifun eða ánægju ferðamannanna. Vonast er til að nýta megi niðurstöður þessarar könnunar til að greina styrkleika Vestfjarða sem ferðamannastaðar, skilgreina möguleika í kynningu svæðisins og greina frekari möguleika á uppbygginu afþreyingar og þjónustu fyrir ferðamenn. Þá leggur könnunin grunn fyrir frekari rannsóknir á ferðamönnum og uppbyggingu ferðaþjónustu á Vestfjörðum sem eru fyrirhugaðar hjá Rannsókna- og fræðasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Skýrslan í heild verður aðgengileg áhugasömum á vef Rannsóknasetursins, www.vest.hi.is að fyrirlestrinum loknum.
Vísindaport Háskólaseturs Vestfjarða er óformlegur umræðutími í hádeginu á föstudögum. Þar er fjallað í stuttu máli, 20-30 mínútur, um yfirstandandi rannsóknir eða rannsóknir sem er lokið og svo er orðið gefið laust. Vísindaportið fer fram í kaffisal Háskólaseturs Vestfjarða og eru allir velkomnir.
Kynningarfundir á erlendum mörkuðum skiluðu góðum árangri
Ólöf Ýrr Ferðamálastjóri á fundinum í kaupmannahöfn
Samstarf Ferðamálastofu, Útflutningsráðs, Samtaka ferðaþjónustunnar, utanríkisráðuneytis og Höfuðborgarstofu um röð kynningarfunda á helstu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu í Evrópu tókst með miklum ágætum. Fundað var í fimm borgum með bæði söluaðilum Íslandsferða og blaðamönnum.
„Ég var afar þakklát fyrir samstarfið við það góða fólk sem tók þátt í ferðinni og langar að þakka því sérstaklega fyrir," segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri. Í ferðina fóru Árni Gunnarsson, formaður SAF, Þorleifur Þór Jónsson forstöðumaður hjá Útflutningsráði, Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og sendiherrarnir á hverjum stað tóku einnig þátt í fundunum: Guðmundur Árni Stefánsson í Stokkhólmi, Tómas Ingi Olrich í París, Svavar Gestsson í Kaupmannahöfn, Ólafur Davíðsson í Frankfurt og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir í Osló." Einnig komu að fundunum fulltrúar fyrirtækja innan SAF. Þar var um að ræða Icelandair, Iceland Express, Iceland Excursions, Icelandair Hotels, Hótel Ísafjörð, Iceland Travel, Snæland Grímsson ehf., Radisson SAS - Hotel Saga og Erlingsson Naturreisen. Þeim fjölmörgu fulltrúum söluaðila sem sóttu fundina eru þakkir færðar fyrir áhugann.
Í tengslum við fundina voru unnir kynningarbæklingar á fjórum tungumálum og má skoða ensku útgáfuna hér. Einnig eru myndir frá fundinum í Kaupmannahöfn sem Þorleifur Þór Jónsson tók.
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands á Höfn
Frá fundinum. Mynd: Jón Páll Hreinsson
Sævar Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða og Jón Páll Hreinsson, forstöðumaður Markaðsstofa Vestfjarða tóku þátt í aðalfund Ferðamálasamtaka Ísland á Höfn í Hornafirði 21.nóvember sl.
Aðalfundur samtakanna er jafnan vettvangur fjörugra skoðanaskipta og var engin undantekning þetta árið, enda hefur aðalfundur sjaldan eða aldrei verið haldin undir viðlíka kringumstæður í þjóðfélaginu. Á fundinum var formaður samtakanna, Pétur Rafnsson, endurkjörin einróma með lófataki.
Á fundinum voru málefni ferðaþjónustunnar rædd og var ályktun, uppruninn var frá Kristjáni Pálssyni, formanni Ferðamálasamtaka Suðurnesja rædd sérstaklega, enda var þar að ræða umfangsmiklar og rótækar tillögur.
Fjölmörgum tillögum var vísað til stjórnar til afgreiðslu og ljóst að henni bíður mikilvægt starf næstu misseri að skilgreina þær tillögur sem fram komu.
Sérstaka athygli vakti tillaga sem samþykkt var af þinginu varðandi starfsemi Markaðsstofa á Landsbyggðinni, en þingið ályktaði um að Markaðsstofur ættu sannarlega að vera sjö talsins og hvatti ráðherra til að veita til þeirra fé svo rekstur þeirra væri tryggður til framtíðar.
Ferðamálaþing Ferðamálastofu og Iðnaðarráðuneytisins
Iðnaðarráðherra í ræðustól. Mynd: Ferðamálastofa
Fimmtudaginn 20.nóv sl. var Ferðamálaþing Ferðamálastofu og Iðnaðarráðuneytisins haldið á Grand Hótel Reykjavík.
Þingið heppnaðist ákaflega vel og troðfylltu ferðaþjónustuaðilar 400 manna fundarsal. Össur Skarphéðinsson, Iðnaðarráðherra, setti þingið með kraftmikilli ræðu og var ekki að heyra annað á máli hans að ráðherra stæði þétt á bak við ferðaþjónustuna og talaði hann m.a. fyrir aukinni aðstoð við ýmis hagsmunamál greinarinnar.
Sérstaka athygli vakti málflutningur ráðherra um aukna áherslu á rannsóknir í ferðaþjónustu, en auknar rannsóknir eru greininni afar mikilvægur og ánægjuefni að ráðherra sýni því slíkan áhuga. Jafnframt gerði ráðherra grein fyrir hugmyndum um fjárframlög til markaðssetningar á landsbyggðinni og að markaðsstofurnar á landsbyggðinni mundu fá hluta þess fjármagns.
Fjöldi frambærilegra erinda var fluttur á þinginu, en að öðrum ólöstuðum þótti erindi Vestfirðingsins Páls Ásgeirs Ásgeirssonar, blaðamanns afar skemmtilegt. En hann fjallaði á lifandi og afar áhugaverðan hátt um náttúru Íslands og möguleika á ferðaþjónustu. M.a. tók hann sérstaklega fyrir Lónafjörð í Jökulfjörðum, sem hann taldi vera "paradís á jörð".
Ný rekstrar- og fjárhagslíkön frá IMPRU
Á vef Impru boðið upp á ný reiknilíkön til að gera rekstrar- og fjárhagsáætlanir.Reiknilíkönin eru þrenns konar:
- Hugmyndalíkan sem ætlað er fyrir byrjendur í gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana og þá sem vilja á fljótlegan og þægilegan hátt setja upp áætlun.
- Grunnlíkan sem bíður upp á áætlun til þriggja ára og hefur verið í boði hjá Impru undanfarin ár.
- Til viðbótar er síðan komið Rekstrarlíkan sem er ætlað fyrir starfandi fyrirtæki eða flóknari rekstur til 5 ára. Með því líkani er boðið upp á rafrænt námskeið um gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana. Líkönin eru á www.impra.is undir "reiknilíkön".
Nánari upplýsingar er einnig hægt að fá hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Ísafirði í s.450 4050



