9. des 10 - Sigurður Atlason
Stefnumótun vestfirskrar ferðaþjónustu 2010-15 komin út
Undanfarið misseri hafa Ferðamálasamtök Vestfjarða unnið að stefnumótun
vestfirskrar ferðaþjónustu. Haldnir voru stefnumótunarfundir um allan
fjórðunginn í þeim tilgangi að ná fram sjónarmiðum flestra þeirra sem starfa eða
tengjast inn í greinina. Nokkuð á annað hundrað manns lögðu til hugmyndir í
stefnumótunina sem fór fram á nokkrum fundum víðsvegar um Vestfirði, stórum og
smáum. Þar var leitað eftir því að aðilar í ferðaþjónustu og aðrir sem koma að
greininni legðu til sínar hugmyndir. Þessi stefnumótun er því afrakstur
greinarinnar sjálfrar, þar sem hún leggur til hvert skuli stefna í ferðamálum
fjórðungsins næstu misserin.
Í stefnmótunarskýrslunni koma fram tölulegar upplýsingar um stöðu ferðaþjónustunnar í fjórðungnum í dag auk þess sem lagðar eru fram verkefnatillögur og aðgerðaráætlanir. Þar eru ákveðnum aðilum í stoðkerfinu gert að taka frumkvæði í ýmsum verkþáttum og stuðla að því að verkin komist í framkvæmd en rykfalli ekki ofan í skúffu.
Vestfirsk ferðaþjónusta hefur verið nokkuð áberandi undanfarið og skorað hátt í viðhorfskönnunum. Samkvæmt þeim hefur greininni vaxið mikið fiskur um hrygg en til að mynda fékk vestfirsk ferðaþjónusta nýverið hæstu einkunn varðandi gæði í ferðaþjónustu í landinu. Sú könnun var framkvæmd af Miðlun ehf og RRF (Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar) og stóð yfir dagana 20. október til 16.nóvember 2010. Þá er vert að minnast á umfjöllum Lonely Planet fyrir árið 2011 sem setur Vestfirði sem áfangastað meðal þeirra 10 staða í heiminum sem standa upp úr.
Vestfirðir hlutu einnig mikilvæga viðurkenningu í haust frá Eden, European Destination of Excellence, verkefni sem unnið er frá Evrópuráðinu og eiga eftir að fá mikla kynningu í gegnum það. Auk þess hafa fleiri aðilar fengið hverskyns viðurkenningar á árinu, s.s. nýtt Farfuglaheimili á Broddanesi í Kollafirði sem lenti á topp 5 lista í heiminum í gæðakönnun sem unnin var af Hostels International eftir viðhorfskönnun meðal viðskiptavina sína.
Af þessari upptalningu má sjá að vestfirsk ferðaþjónusta er í mikilli sókn þessi misserin og vonandi verður stefnumótunin verkfæri sem hægt verður að nýta vel í alla kynningu og uppbyggingu næstu árin.

Ég vil fyrir hönd vestfirskrar ferðaþjónustu þakka öllum sem komu að
vinnunni og sérstakar þakkir fær Ásgerður Þorleifsdóttir ráðgjafi hjá ATVEST
fyrir þá gríðarlegu vinnu sem hún hefur lagt verkefninu til.
Fram til sigurs,
Sigurður Atlason
formaður FMSV
Hægt er að skoða skýrsluna í þessu formi að ofan og fletta á milli síðna eins og í bók. Einnig er hægt að hlaða niður pdf skjali héðan af síðunni á slóðinni http://www.vestfirskferdamal.is/skraarsafn/flokkur/22/
27. nóv 09 - Sigurður Atlason
Myndir frá stefnumótunarfundum á Vestfjörðum
Nú hafa verið birtar nokkrar myndir frá stefnumótunarfundunum sem haldnir voru á þremur stöðum á Vestfjörðum um miðjan nóvember. Þær er hægt að nálgast með því að smella hér eða til hliðar undir tenglinum Myndir frá fundum. Þessa dagana er verið að vinna úr þeim umræðum sem fóru fram á fundunum og verður birt innan tíðar hér á vef Ferðamálasamtakanna. Hópstjórarnir fjórir munu hittast innan tíðar og rifja upp umræðurnar og vinna að næstu skrefum við vinnuna.
Ef einhverjir skyldu luma á myndum frá fundunum þá þætti okkur vænt um að fá að nýta þær hér á heimasíðunni. Þá skulu þær sendar Sigurði Atlasyni á netfangið vestfirdir@gmail.com.