Aðalfundur 2014
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða 2014 verður haldinn á Hótel Ísafirði föstudaginn 10. október n.k. kl 17.00
Síðastliðið vor var tekin sú ákvörðun að fresta fundi fram að hausti og vinna að veglegri dagskrá í tengslum við aðalfundinn. Ítarleg dagskrá verður send á næstu dögum en hér má sjá dagskána í grófum dráttum.
Föstudagurinn 10. október
Kl 13.00 Námskeið í markaðssetningu í ferðaþjónustu á samfélagsmiðlum
Kl 17.00 Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða
Laugardagur 11.október
Kl 11.00 -14.00 Málþing. Gæði og innviðir ferðaþjónustunnar.
Kl 15.00-18.00 Heimsóknir í fyrirtæki á svæðinu.
Kl 20.00 Uppskeruhátíð með glensi og gaman. Hvatningaverðlaun veitt.
Á sunnudeginum verður svo haldinn aðalfundur Vesturferða.
Ferðaþjónustuaðilar um allan fjórðunginn eru hvattir til að kynna sér starfsemi samtakana og hvetur stjórnin alla þá sem áhuga hafa á starfi FMSV og vilja hafa áhrif á þróun ferðaþjónustunnar á Vestfjörðum að bjóða sig fram til stjórnarstarfa. Í ár verður kosið um fjóra nýja stjórnarmenn til tveggja ára auk formanns sem kosinn er til eins árs í senn.
Greiðsluseðlar fyrir félagsgjöldum verða sendir út á næstu dögum. Fullgildur félagi telst sá er sótt hefur um aðild til stjórnar og hún samþykkt og fært á félagaskrá. Þá þarf árgjald yfirstandandi árs að vera greitt. Hægt er að sækja um aðild hér á heimasíðu FMSV með því að smella hér.
Fyrir hönd stjórnar Ferðamálasamtaka Vestfjarða,
Ásgerður Þorleifsdóttir
Formaður