Aðalfundur Ferðamálasamtaka um næstu helgi
þann 10.04.2010
Um næstu helgi verður aðalfundur
Ferðamálasamtaka
Vestfjarða haldinn á Hótel Núpi í Dýrafirði. Dagskráin hefst á
föstudagskvöld
þann 16. apríl kl. 20:00 þar sem vinna við stefnumótun Vestfirskrar ferðaþjónustu
verður
kynnt. Vel yfir 100 manns tóku þátt í vinnunni í vetur. Á þeim fundi
verður hægt
að koma með athugasemdir og koma með tillögur til breytinga.
Stefnumótunin
verður síðan gefin út vikuna á eftir. Það ættu allir ferðaþjónustuaðilar
að stefna að því að koma sínum hugðarefnum að í skýrslunni.
Aðalfundurinn sjálfur verður haldinn á
laugardagsmorgun kl. 9:00. Aðalfundurinn verður hefðbundinn þar sem
farið verður
yfir venjuleg aðalfundarstörf. Stefnt er að því að honum verði lokið kl.
10:30.
Ráðstefnan Umhverfisvottaðir Vestfirði
hefst kl.
11:00. Þar verða
haldin
fjölbreytt erindi. Rætt verður um stöðu umhverfismála á Íslandi og
hvaða aðgerða sé hægt að grípa til, auk þess sem þessi mál verða sett í
hnattrænt samhengi. Fjallað verður um almennt viðhorf til náttúrunnar og
sagðar
reynslusögur af vottun einstakra fyrirtækja, með áherslu á mikilvægi
vottunar
fyrir markaðsstarf og daglegan rekstur. Þar flytja erindi fræðimenn
og sérfræðingar sem hafa látið umhverfismál til sín taka og munu miðla
ráðstefnugestum af mikilli reynslu sinni á því sviði.
Lok
ráðstefnunnar verða um kl. 17:00
og þá verður farið í skoðunarferð í Skrúð. Um kvöldið verður síðan
skemmtun á
hótelinu. Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér.
Það
eru allir ferðaþjónustuaðilar og aðrir þeir sem hafa áhuga á vestfirsku samfélagi á Vestfjörðum
hvattir til að
taka þátt í þessari aðalfundarhelgi Ferðamálasamtakanna.
Fundargestir
eru
jafnframt hvattir til að hafa samband við Hótel Núp og gera viðeigandi
ráðstafanir með mat og gistingu ef á þarf að halda. Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu Hótel Núps á www.hotelnupur.is.