Starfshópur um endurskoðun stoðkerfis sem skipaður var fljótlega eftir
Fjórðungsþing á haustdögum hefur lagt fram skýrslu með tillögum um breytingu á stoðkerfi Vestfjarða. Hópurinn sem var skipaður fulltrúum frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Markaðsstofu
Vestfjarða,
Menningarráði Vestfjarða og Vaxtarsamningi Vestfjarða hefur skilað frá sér
tillögum sem verða lagðar fyrir auka fjórðungsþing þann 25. nóvember
næstkomandi. Starfshópurinn klofnaði í afstöðu sinni en fulltrúi
Ferðamálasamtaka Vestfjarða í stjórn Markaðsstofunnar styður tillögu sem fram
kemur í eftirfarandi áliti stjórnar samtakanna.
Skýrsla starfshópsins er að finna í heild sinni
á
þessum tengli http://vestfirskferdamal.is/skraarsafn/skra/70/ . Ályktun FMSV er einnig að finna
aftast í skýrslu starfshópsins.
Ályktun og tillaga stjórnar Ferðamálasamtaka
Vestfjarða vegna umræðu um sameiningu stoðkerfis á Vestfjörðum.
Stjórn
Ferðamálasamtaka Vestfjarða telur fram komnar tillögur starfshóps um sameiningu
stoðkerfis á Vestfjörðum óásættanlegar. Stjórnin lítur þannig á að verið sé að
leggja niður Markaðsstofu Vestfjarða sem starfar fyrst og fremst sem
markaðsstofa ferðamála, og þar með slíta tengsl grasrótarinnar við
stoðkerfið.
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa mörg undanfarin ár átt góð
og árangursrík samskipti við Markaðsstofu Vestfjarða og er einn af stofnaðilum
stofunnar og hafa lagt fram fjármuni árlega til reksturs hennar. Á sama
hátt hafa Ferðamálasamtökin átt gott samstarf við Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
og fleiri stofnanir í stoðgrindinni.
Með þessum tillögum er verið að
skerða verulega möguleika Ferðamálasamtakanna til samstarfs við stoðkerfið og
minnka áhrif greinarinnar við stefnumótun og ákvarðanatöku. Ferðamálasamtökin
vilja gjarnan að Markaðsstofa Vestfjarða vinni í náinni samvinnu við aðrar
stoðstofnanir þannig að hinn mikli mannauður innan þeirra nýtist betur til góðra
verka.
Mikilvægt er að fagstofnun eins og Markaðsstofu Vestfjarða sé
tryggð sjálfstæði og starfsöryggi eins og núverandi samþykktir kveða á
um.
Stjórnin sér fram á að með þátttöku í fagráði, eins og fram kemur í
áðurnefndum tillögum starfshóps, muni fulltrúi ferðaþjónustunnar fjalla einungis
að mjög takmörkuðu leyti um málefni greinarinnar. Að auki hafi fagráð takmörkuðu
hlutverki að gegna sem ráðgefandi aðili til stjórnar nýrrar
stofnunnar.
Stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða hvetur
sveitarstjórnarfulltrúa að endurskoða fram komnar tillögur. Hvergi er bent á
kosti sameiningar fyrir Markaðsstofu Vestfjarða í tillögunum og ekkert sem sýnir
fram á að sameining allra stoðstofnana muni efla þau verkefni sem ferðaþjónustan
stendur frammi fyrir.
Stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða leggur fram
eftirfarandi tillögu:
Formlegt klasasamstarf verði myndað meðal allra
stofnana undir stjórn og að frumkvæði Fjórðungssambands Vestfjarða ásamt aðkomu
fulltrúa hins opinbera. Vettvangur þar sem öll helstu verkefni eru kynnt og
samstarf stofnananna útfært eftir þörf. Allar stofnanir hafi sama viðmót, reynt
verði eftir megni að tryggja þekkingarklasa á hverjum stað með því að
starfsstöðvar verði undir sama þaki. Haldnir verði reglulegir samþættingarfundir
með þátttöku starfsmanna og stjórna.