
Miðvikudaginn 27. janúar kl. 20:00 verður haldinn opinn kynningarfundur
á Ísafirði um svæðisleiðsögunám á Vestfjörðum þar sem farið verður yfir fyrirkomulag námsins. Áhugasamir utan
norðanverðra Vestfjarða geta tekið þátt í fundinum með hjálp
fjarfundabúnaðar á Hólmavík, Reykhólum og Patreksfirði. Námið er haldið af Fræðslumiðstöð Vestfjarða í samvinnu við Leiðsöguskóla Íslands sem ber faglega ábyrgð á
náminu, og Ferðamálasamtök Vestfjarða. Markmið námsins er að nemendur
öðlist almenna þekkingu á leiðsögn og sérþekkingu á Vestfjörðum. Á
fyrstu önn koma þátttakendur saman á tveimur helgarlotum, en á annarri
og þriðju önn verða þrjár helgarlotur, en námið fer að öðru leyti fram
í dreifnámi. Helgarloturnar eru haldnar á mismunandi stöðum á
Vestfjörðum. Allar nánari upplýsingar um svæðisleiðsögunámið er að finna á
vef Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða.