Tæpar 15 milljónir til ferðaþjónustu- og menningarverkefna á Vestfjörðum
þann 22.04.2009
Iðnaðarráðuneyti hefur úthlutað eitt hundrað milljónum króna til fjörutíu
ferðaþjónustuverkefna um allt land. Styrkirnir eru fjármagnaðir af byggðaáætlun
og er ætlað að renna frekari stoðum undir uppbyggingu atvinnugreinarinnar á
landsbyggðinni. Fimm ferða- og menningarverkefni á Vestfjörðum fengu styrk úr
sjóðnum samtals að upphæð 14.500.000.- Alls bárust 210 umsóknir um styrkina sem
lýsir þeirri grósku sem er að finna í ferðaþjónustu á Íslandi. Styrkir til
menningar- og heilsuferðaþjónustu eru áberandi en einnig til náttúruskoðunar
ýmiss konar.
Hér má sjá lista yfir styrkþega
Hér má sjá lista yfir styrkþega