Tilboð til smærri fyrirtækja á veflausn Snerpu

Undirrituðum var að berast eftirfarandi póstur frá Snerpu um tilboð á veflausn fyrir smærri fyrirtæki. vefurinn vestfirskferdamal.is er einmitt keyrður á veflausn frá Snerpu og hefur reynst vel.

Bréfið hljóðar svona:

Veftilboð Snerpu

Til nýsköpunarverkefna og smærri fyrirtækja

Eitt af lykilatriðunum í rekstri fyrirtækja er að vera sýnilegur á markaði og vönduð heimasíða er mjög mikilvægur þáttur í því. Það er dýrt að koma sér upp góðri heimasíðu og við vitum að ný og lítil fyrirtæki þurfa að horfa í hverja krónu í uppbyggingu og rekstri. Því bjóðum við upp á nýjung vefmálum. Um er að ræða lágmarksútgáfu af vefumsjónarkerfinu Snerpli á verði sem ætti að henta öllum nýsköpunar og sprotafyrirtækjum. Fyrirtækið leggur til efnið á síðuna og kaupir viðkomandi lén. Þegar fyrirtækið vex og þörfin fyrir ítarlegri og stærri heimasíðu kemur er lítið mál að fá tilboð í stækkun og breytingar.

Snerpa hefur þróað og rekið vefumsjónarkerfið Snerpil frá árinu 2006 og fjölmörg fyrirtæki og sveitarfélög hafa nýtt sér þjónustuna. Það er mikilvægt að halda uppi vandaðri og faglegri þjónustu við þau fyrirtæki sem eru að byggja upp sitt markaðstarf, hvort sem á við nýja þjónustu eða ný fyrirtæki, þó ástandið í þjóðfélaginu verði til þess að fyrirtæki hafi minni fjármuni til að spila úr.

Vefkerfið inniheldur fréttakerfi, fjórar undirsíður og hýsingu fyrir 3.059 kr. á mánuði og startkostnaður er aðeins 75.000 kr. (öll verð eru án vsk.)

Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu fyrirtækisins http://www.snerpill.is/eiginleikar/Lausn_til_nyskopunar_og_smaerri_fyrirtaekja

 

Fyrir hönd Snerpu,

Kærar þakkir,

Ágúst G. Atlason
Margmiðlunarhönnuður
Snerpa ehf
Sími: 520 4000