Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar er framundan
þann 12.09.2011
Framundan er uppskeruhátíð vestfirskrar ferðaþjónustu en stefnt er að því að
ferðaþjónustaðilar og starfsfólk þeirra geri sér glaðan dag á Hótel Núpi í Dýrafirði laugardaginn 15.
október n.k. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður og færist á milli
staða frá ári til árs. Hugmynd að uppskeruhátíðinni á rætur sínar að rekja til
stefnumótunarvinnunnar sem lögð var fram á síðasta ári en í henni er gert ráð
fyrir að hausthátíðin verði haldin í fyrsta sinn haustið 2011. Verkefnið er
sameiginlegt verkefni Ferðamálasamtaka Vestfjarða og Markaðsstofu Vestfjarða.
Verið er að vinna að dagskrá sem verður kynnt í næstu viku. Það er allavega
óhætt að fara að taka daginn frá og hefja undirbúning til að hitta kollega
sína´frá öllum fjörðum og víkum fjórðungsins í góðu fjöri um miðjan október.