Verkefnastyrkir NORA 2008

Norræna Atlantsnefndin (NORA) styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu í þeim tilgangi að byggja upp sterkt norrænt svæði og efla sjálfbæra þróun.
Ein af leiðunum að þessu markmiði er að veita styrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna. Þátttakendur skulu vera frá a.m.k tveimur af fjórum NORA-löndum (Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs).

Hér með er auglýst eftir umsóknum og er þetta síðari umsóknarfrestur árið 2008.
Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni á sviði UPPLÝSINGATÆKNI og SAMGANGNA.


Einnig má sækja um styrki til verkefna sem falla undir eftirtalin svið:
AUÐLINDIR SJÁVAR
FERÐAÞJÓNUSTA


Verkefni sem falla utan þessa ramma geta komið til greina undir yfirskriftinni ANNAÐ SVÆÐASAMTARF, ef þau falla að öðru leyti undir markmið NORA.


Umsóknareyðublaðið má finna á heimasíðu NORA, www.nora.fo og útfyllist á dönsku, norsku eða sænsku og skilist í tölvutæku formi til:

NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE
Bryggjubakki 12 - Box 259 - FO-110 Tórshavn - Sími: +298 353110 - Fax: +298 353101

Umsóknir skulu berast NORA í síðasta lagi föstudaginn 6. október 2008.

Frekari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki, sími 455 5400,  netfang sigga@byggdastofnun.is 

Jafnframt er að finna upplýsingar á heimasíðu Byggðastofnunar, www.byggdastofnun.is og heimasíðu NORA. www.nora.fo

Norræna Atlantsnefndin (NORA) er norrænt verkefnasamstarf milli Færeyja, Grænlands, Íslands og strandhéraða Noregs og heyrir undir norrænu ráðherranefndina, sem fjármagnar starfsemina ásamt fjárframlagi þátttökulandanna. Byggðastofnun rekur skrifstofu NORA á Íslandi og Sigríður K. Þorgrímsdóttir er tengiliður.