Vestfirðir 2010. Skilafrestur á efni fyrir lok mars.
þann 19.03.2010
Vinnsla á ferðablaðinu Vestfirðir 2010 er komin á fullan skrið. Blaðið, sem nú
kemur út 16. sumarið í röð, mun áfram birta góðar upplýsingar og
staðarlýsingar fyrir ferðafólk á leið um Vestfirði, frásagnir fólks sem hefur
ferðast um Vestfjarðakjálkann og hrifist af svæðinu ásamt fjölda fallegra
mynda. Í blaðinu verður einnig að finna ábendingar um áhugaverða
viðkomustaði í fjórðungnum og viðburði sem vert er að sækja. Líkt og fyrr mun
blaðið liggja frammi á yfir 200 stöðum á landinu, þ.e. upplýsingamiðstöðvum
og áningarstöðum ferðafólks. Þeim sem vilja koma á framfæri upplýsingum í
blaðið um starfið í sumar er vinsamlegast bent á að hafa samband við Hlyn Þór
Magnússon í síma 892 2240 eða 434 7735 eða í netfanginu hlynur@bb.is.
Skilafrestur efnis er fyrir lok mars. Þá þarf að panta auglýsingapláss
tímanlega eða í síðasta lagi 31. mars (miðvikudag fyrir páska) hjá Halldóri
Sveinbjörnssyni í síma 894 6125 eða 456 4560 eða í netfanginu
halldor@bb.is. Stefnt er að útgáfu í byrjun maí.