Hvatningarverðlaun í heilsutengdri ferðaþjónustu - umsóknarfrestur
þann 22.11.2010
Þann 3. desember næstkomandi rennur út umsóknarfrestur um
hvatningarverðlaun í heilsutengdri ferðaþjónustu. Með það að markmiði að stuðla
að áframhaldandi þróun greinarinnar ákvað iðnaðarráðherra að veita tvenn
verðlaun til fyrirtækja sem skara fram úr á þessu sviði. Hvor verðlaun eru að
upphæð ein milljón króna og verða þau veitt í desember næstkomandi. Verðlaunin
verða veitt fyrir áhugaverða heilsuferðapakka fyrir erlenda ferðamenn.
Verðlaunahafar þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
Hverjir geta tekið þátt:
Öllum sem bjóða upp á heilsuferðaþjónustu er frjálst að taka þátt að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma á umsóknareyðublaðinu.
Umsóknum skal skilað til Ferðamálastofu eigi síðar en 3. desember nk. á sérstöku umsóknareyðublaði sem nálgast má á vef Ferðamálastofu.
Verðlaunahafar þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Þrír eða fleiri aðilar/fyrirtæki koma að heilsuferðinni og skal nafn og hlutverk hvers og eins skilgreint nákvæmlega á umsóknareyðublaðinu.
- Ferðin sé ætluð erlendum vel skilgreindum markhópum.
- Heilsuferðirnar verði metna út frá nýnæmi og framtíðarmöguleikum þeirra.
- Heilsuferðin sé amk. 3 sólarhringar og sé í boði utan háannatíma.
- Heilsuferðin falli að skilgreiningu á vellíðunar- eða heilsuferðaþjónustu*
- Tilgangur ferðarinnar sé að efla heilsu viðskiptavinar.
- Ávinningur af ferðinni sé skilgreindur.