Frá aðalfundi.
Sigurður formaður í ræðustól.
Áslaug í ræðustól. Fundarstjóri, fundarritari og formaður við háborð.
Frá síðasta aðalfundi Ferðamálasamtaka Vestfjarða sem haldinn var á
Drangsnesi
fyrir réttu ári síðan þann 18. apríl 2009, hafa verið haldnir sjö
stjórnarfundir. Þrisvar sinnum hefur stjórnin náð að hittast augliti til
auglitis og fjórum sinnum hafa fundir verið haldnir í gegnum síma.
Stjórnin öll
hefur verið starfsöm og tekið virkan þátt í þeim málefnum sem rædd hafa
verið á
fundunum. Ég vil þakka þeim öllum kærlega fyrir samstarfið á liðnu ári
og hlakka
til að takast á við frekari verkefni í framtíðinni, með þeim
stjórnarmönnum sem
halda áfram og þeim sem koma nýjir inn. Ég vil færa sérstakar þakkir til
Áslaugar Alfreðsdóttur sem hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram til
endurkjörs
að þessu sinni. Áslaug hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu
ferðaþjónustu á Vestfjörðum innan Ferðamálasamtaka Vestfjarða frá árinu
1988.
Á liðnu starfsári var vinna við stefnumótun ferðaþjónustunnar áberandi sem var
eitt þeirra helstu markmiða liðins starfsárs. Ferðamálasamtökin fengu í lið með
sér Ásgerði Þorleifsdóttur frá AtVest, Jón Pál Hreinsson frá Markaðsstofu
Vestfjarða og Jón Jónsson frá Menningarráði Vestfjarða til að hjálpa til við að
stýra vinnunni undir forystu Ásgerðar, en óhætt er að segja að meginvinna
verkefnisins hafði verið á hennar herðum. Haldnir voru fjölmennir fundir á
haustdögum um allan fjórðunginn þar sem rædd voru málefni ferðaþjónustunnar út
frá öllum hliðum og sóttar upplýsingar til þeirra sem sóttu fundina um hvaða
verkefni þyrfti að vinna að á næstu árum. Stefnumótunarskýrslan var kynnt á
fundi í gærkvöldi hér í þessum sal á Hótel Núpi í Dýrafirði og verður gefin út
von bráðar.
Það koma skýrt fram meðal ferðaþjónustunnar á
stefnumótunarfundunum að stefnt skuli að því að Vestfirðir verði leiðandi svæði í
umhverfismálum og sjálfbærri ferðaþjónustu og skapi sér ímynd og sérstöðu á því
sviði. Ferðaþjónustan á Vestfjörðum skuli einkennast af gæðum, trausti og
gestrisni heimamanna og á að styðja undir sérstöðu svæðisins sem byggi á
ósnortinni náttúru, friðsæld og öðruvísi upplifun á umhverfi og menningu
svæðisins.
Eftir þessa fjölmennu fundi þar sem nokkuð á annað hundrað manns
víðsvegar á Vestfjarðakjálkanum lögðu fram hugmyndir og umræðu til
stefnumótunarinnar kom það berlega í ljós að Vestfirðingar eru tilbúnir til að
hefja umræðu af fullri alvöru um alla þætti umhverfismála. Raunar kom fram skýr
krafa um það á fundunum að sá málaflokkur yrði tekinn sérstaklega fyrir við allt
skipulag ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða sá að
ekki væri eftir neinu að bíða að koma umræðunni af stað og ákvað þegar í stað að
stefna að metnaðarfullri ráðstefnu, Umhverfisvottaðir Vestfirðir, í tengslum við
næsta aðalfund samtakanna. Sú ráðstefna mun hefjast eftir þennan aðalfund okkar
þar sem fram fjöldi fræðimanna og sérfræðinga sem hafa látið umhverfismál til
sín taka og munu miðla ráðstefnugestum af mikilli reynslu sinni á því
sviði.
Ferðamálasamtök Vestfjarða stefna að því að fylgja ráðstefnunni eftir
í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Markmiðið er að umhverfisvottun
Vestfjarða komist á dagskrá Fjórðungssambandsins og að vestfirsk sveitarfélög
sameinist um að stefna að slíkri vottun, í það minnsta taki upp þá umræðu á
meðal íbúanna.
Ferðamálasamtökin hafa haft hlutdeild að Markaðsstofunni ásamt
Fjórðungssambandi Vestirðinga og Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða frá stofnun
hennar árið 2006. Megnið af þeim tíma eða frá því um mitt ár 2006 hefur Jón Páll
Hreinsson verið forstöðumaður hennar og unnið vasklega að markaðsverkefnum innan
hennar og verið sérlega duglegur að setja sig inn í málefni ferðaþjónustunnar og
vinna greininni framgang. Hann sagði nýlega upp störfum og stefnir að því að
snúa sér að öðrum verkefnum í framtíðinni. Núna á vordögum mun stjórn
Markaðsstofunnar auglýsa eftir nýjum forstöðumanni og stefnir að því að ráða til
starfa nýjan forstöðumann í byrjun ágúst n.k.. Það bíður stjórnar
Markaðsstofunnar krefjandi verkefni að ráða í þetta mikilvæga starf í stoðkerfi
greinarinnar og það verður vandaverk að fylla starf Jóns Páls. Ég vil fyrir hönd Ferðamálasamtaka Vestfjarða senda Jóni Páli kærar þakkir fyrir
ánægjulegt og farsælt samstarf undanfarin ár og óska honum alls hins besta í
framtíðinni við ný verkefni.
Göngukortin sjö sem samtökin hafa unnið að útgáfu á
undanfarin ár voru öll komin í sölu á síðasta ári. Salan á þeim gekk vel og
söluveltan á þeim var vel aðra milljón króna. Stjórnin tók umræðu í vetur um
framhald á útgáfu kortanna þar sem farið vary fir lagerstöðu og skoðað hvenær
þörf væri á nýrri prentun á einstökum kortum. Miðað við lagerstöðu þykir ekki
ástæða til að ráðast í prentun fyrir sumarvertíðina í ár heldur að taka ákvörðun
um það fyrir næsta ár. Hliðarverkefni tengd göngukortunum komu líka til umræðu
innan stjórnarinnar s.s. gönguleiðamerkingar í tengslum við merktar leiðar á
kortunum. Göngukortin þurfa að vera sjálfbær, það er, að sala þeirra standi
undir endurútgáfu þeirra þegar á þarf að halda og gerð merkinga. Í því ljósi
ákvað stjórnin á fundi þann 16. janúar að útsöluverð kortanna frá
Ferðamálasamtökunum yrði kr. 600.
Ferðaþjónusta er atvinnugrein sem hefur
mikil og jákvæð áhrif inn í samfélagið en það eru oft óljós mörk á því hvar
landamæri hennar liggja. Ef ekki væri fyrir öfluga ferðaþjónustu þá byggju
íbúarnir ekki endilega við sömu lífskjör og annars væri. Rekstur sundlauga,
matvöruverslana, veitingastaða og hverskyns afþreyingar auk margvíslegrar
annarrar þjónustu, sem þykir sjálfsögð í öllum byggðum, væri vart svipur hjá
sjón ef ekki hefði verið unnið markvisst við uppbyggingu ferðaþjónustu mörg
undanfarin ár. Þegar upp er staðið þá starfa fleiri að einhverju leyti við
ferðaþjónustu en fólk gerir sér kannski almennt grein fyrir.
Það er ekki
síst þess vegna sem ferðaþjónustan, sem er mikilvæg atvinnugrein, þarf að vera
óhrædd við að líta í eigin barm og íhuga hvað betur megi gera. Sjálfsgagnrýni er
okkur öllum hollt og við þurfum öll að gera okkur grein fyrir því að við berum
mikla ábyrgð gagnvart þeim samfélögum sem við búum í. Jafnt vegna þess sem ég
nefndi hér á undan og ekki síður vegna þeirrar ímyndar sem greinin hefur út á
við. Við sjálf þurfum stöðugt að reyna að gera betur og stefna í sameiningu að
því að ferðaþjónustan eflist og glæðist. Jafn vetur, vor, sumar og haust. Það er
að öllu leyti undir okkur sjálfum komið.
Ég vil þakka fyrir margar góðar
samverustundir með ferðaþjónustuaðilum á Vestfjörðum frá því ég tók við
formennsku Ferðamálasamtakanna á síðasta ári og hlakka til að taka þátt í mörgum
spennandi verkefnum sem framundan er. Að vinna að gæðaboðorðum
Ferðamálasamtakanna, stuðla að lengri opnunartíma fyrirtækja með einhverjum
ráðum, fræðslumálum, koma á samvinnu ólíkra aðila, efla ferðaþjónustuna almennt
og vinna að öllum þeim þjóðþrifaverkefnum sem þið lögðuð til í
stefnumótunarvinnunni á síðasta starfsári.
Hótel Núpi í Dýrafirði
þann 17. apríl 2010
Sigurður Atlason
formaður FMSV