Ferðaþjónustuaðilar á góðri stund
Um næstu helgi, laugardaginn 29. september ætlar
ferðaþjónustan á Vestfjörðum að gera sér glaðan dag og halda uppskeruhátíð á
veitingastaðnum vaXon.is í Bolungarvík. Það eru allir sem starfa í ferðaþjónustu
eða hafa áhuga á greininni velkomnir að taka þátt í húllumhæinu.
Ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött til að bjóða starfsfólki sínu með á hátíðina,
því eins og við öll vitum þá er fátt mikilvægara en að fólk sem starfar í
greininni þekki til hvors annars á því víðfeðmna svæði sem Vestfirðir eru.
Uppskeruhátíðin mun fara fram í Bolungarvík að þessu sinni og ljúka með mikilli
veislu eins og áður sagði á veitingastaðnum vaXon.is um kvöldið þar sem einnig
er gert ráð fyrir að fólk gisti. Skráning fer fram hjá Hauki Vagnssyni á
vaXon.is á netfanginu haukur@vaxon.is eða
í síma 862-2221.
Hvatningarverðlaun
2012
Í tengslum við uppskeruhátíðina hefur verið ákveðið að veita
árlega sérstök hvatningarverðlaun til einstaklings eða fyrirtækis í greininni
sem starfar í fjórðungnum og álitið að skarað hafi fram úr á árinu 2012 varðandi
nýsköpun, þjónustu eða umhverfisstefnu. Óskað verður eftir tilnefningum frá
greininni sjálfri. Í tilnefningunni þarf að koma fram nafn sendanda, hver er
tilnefndur og litlum rökstuðningi sem þarf að fylla minnst tvær til þrjár
setningar. Tilnefningarnar skal senda á netfang Ferðamálasamtaka Vestfjarða,
vestfirdir@gmail.com merkt "Tilnefning".
Dagskráin er
eftirfarandi:
13:45 Gestir í skoðunarferð mæti á veitingastaðinn vaXon.is,
Aðalstræti 9, Bolungarvík. Farið verður um Bolungarvík og nágrenni auk þess sem
ferðaþjónustufyrirtæki og þjónustufyrirtæki verða heimsótt
Skoðunarferð hefst kl. 14:00
14:00 Gengið frá vaXon.is yfir í Félgasheimili Bolungarvíkur,
þar mun Dóri Kokkur (Halldór Valsson) taka á móti okkur og sýna
húsið
14:20 Gengið frá Félagsheimili Bolungarvíkur yfir í
Náttúrugripasafn þar sem starfsmenn kynna safnið
14:40 Gengið frá Náttúrugripasafni yfir í Drymlu handverkshús
þar sem starfsemi og verslun er kynnt
14:55 Gengið frá Drymlu yfir að Völuspár skiltum en þar mun
Jónas Guðmundsson segja okkur frá skiltunum
15:10 Gengið niður að höfn og fiskmarkaði
15:25 Gengið að Einarshúsi, Ragna Magnúsdóttir segir sögu
hússins og bíður upp á kaffi og með því
15:55 Gengið að vaXon.is þar sem Haukur Vagnsson kynnir
ferðaþjónustu vaXon, sýnir nýuppgerðan farþegabát, sjóstangveiðibáta og
nýstandsetta gistiálmu
16:10 Farið með rútu frá vaXon.is upp að íbúðagistingu
Mánafells þar sem aðstaða er skoðuð
16:20 Gengið yfir að Systrablokkinni þar sem aðstaða er
skoðuð
16:30 Ekið upp að snjóflóðavarnargarði, bæjarstjórinn Elías
Jónatansson bíður gesti velkomna
16:45 Ekið að Sundlaug Bolungarvíkur þar sem Gunnar Hallsson
tekur á móti gestum
17:00 Ekið frá sundlaug og framhjá gólvellinum að Ósvör, þar
tekur Jóhann Hannibalsson á móti gestum í skynnklæðum og bíður uppá hákarl og
brennivín
17:45 Keyrt hring um bæinn undir leiðsögn Finnboga
Bernódussonar þar sem sagðar verða nokkrar skemmtisögur
18:10 Komið að vaXon.is þar sem skoðunarferð líkur
20:00 Kvöldverður og uppskeruhátíð ferðaþjónustu Vestfjarða
hefst á veitingastaðnum vaXon.is
Tilkynnt um hvatningarverðlaun FMSV 2012
Spurningakeppni ferðaþjónustunnar 2012 undir handleiðslu
Hauks Vagnssonar
23:00-03:00 lifandi tónlist á vaXon.is, sungið, dansað og
talað saman
Fordrykkur og vín með matnum er í boði
Vífilfells.
Miðaverð á uppskeruhátíðina er kr. 6.900 á
mann.
Tilboð á gistingu á vaXon.is:
Gisting í
nýstandsettum 2ja og 3ja manna herbergjum með sér WC/baði. Tilboðsverð á 2ja
manna herbergi er 10.000, og þriggja manna herbergi kr. 15.000. Tekið er við
pöntunum í matinn og gistingu hjá Hauki Vagnssyni í síma 862-2221 eða með E-mail
á haukur@vaxon.isvaXon.is ætlar að bjóða gistingu í
nýstandsettum 2ja og 3ja manna herbergjum með sér WC/baði. Tilboðsverð á 2ja
manna herbergi er 10.000, og þriggja manna herbergi kr. 15.000. Tekið er við
pöntunum í matinn og gistingu hjá Hauki Vagnssyni í síma 862-2221 eða með E-mail
á haukur@vaxon.is vaXon.is ætlar að bjóða gistingu í nýstandsettum 2ja og 3ja
manna herbergjum með sér WC/baði. Tilboðsverð á 2ja manna herbergi er 10.000, og
þriggja manna herbergi kr. 15.000. Tekið er við pöntunum í matinn og gistingu
hjá Hauki Vagnssyni í síma 862-2221 eða með E-mail á haukur@vaxon.is vaXon.is
ætlar að bjóða gistingu í nýstandsettum 2ja og 3ja manna herbergjum með sér
WC/baði. Tilboðsverð á 2ja manna herbergi er 10.000, og þriggja manna herbergi
kr. 15.000. Tekið er við pöntunum í matinn og gistingu hjá Hauki Vagnssyni í
síma 862-2221 eða með E-mail á haukur@vaxon.is
Skráningu skal lokið FYRIR fimmtudaginn 27. september.
Skráning fer fram hjá Hauki Vagnssyni á netfanginu haukur@vaxon.is eða í síma
862 2221.
Svo nú er bara að bretta upp ermar og skrá sig og sitt starfsfólk.
Gleðilega uppskeruhátíð!