- öllum verður boðið að taka þátt og gerast hluthafarFerðamálasamtök Vestfjarða hafa gert kauptilboð í meirihluta í
ferðaskrifstofunnar Vesturferðir. Ætlunin með kaupunum er að tryggja öfluga
upplýsinga- og sölugátt með skilvirkri bókunarþjónustu sem allir
ferðaþjónustuaðilar í fjórðungnum hafi aðgang að. Unnið verður í nánu samstarfi
við Markaðsstofu Vestfjarða og vefgáttin westfjords.is verður einnig nýtt til
kynningar og sölu á vöru og þjónustu sem er í boði hverju sinni á svæði
Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Með kaupunum mun gefast tækifæri fyrir
öflugri samvinnu meðal allrar ferðaþjónustunnar með því að opna einn risastóran
markað á vestfirskri ferðaþjónustu og opna sölugátt þar sem hægt verður að
versla beint allar þær vörur sem eru í boði í greininni. Gisting, afþreying,
ferðapakkar og hvað annað sem vestfirsk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða verði
öll á einum stað og viðskiptavinir munu ekki þurfa að velkjast um hvað er í boði
í fjórðungnum. Auk þess eiga viðskiptavinir að geta verslað alla þjónustu sem
þeim þóknast beint frá Vestfjörðum áður en af stað er haldið. Eins og staðan er
í dag þá getur verið frekar flókið að átta sig á því hvað er raunverulega í boði
í fjórðungnum og skilaboð eru oft misvísandi.
Ætlunin er að mjög breið
samstaða verði um eignarhald Vesturferða og félagið verði nýtt sem allsherjar
bókunarmiðstöð fyrir vestfirska ferðaþjónustu. Hagnaður af bókunargjöldum
félagsins mun renna til markaðssetningar alls fjórðungsins og stórauka þannig
fjármagn til markaðssetningar. Öllum verður gefinn kostur á að kaupa hlut í
félaginu en Ferðamálasamtökin munu strax selja stóran part af 53% hluta sínum í
Vesturferðum og stefnt er að því að auka nokkuð hlutafé í félaginu. Þannig mun
öllum gefast kostur á að kaupa hluti upp á 50 þús til 500 þús krónur á næstunni
og verða um leið meiri áhrifaaðilar fyrir markaðssetningu fjórðungsins.
Ef af kaupunum verður er ætlunin að breyta nöfnum Vesturferða / West Tours og nota
frekar heiti sem gefur skýrt til kynna á hvaða svæði á Íslandi ferðaskrifstofan
starfar. Ekki er þó stefnt að því að verulegar breytingar muni eigi sér stað á rekstri Vesturferða fyrst um sinn. Það verður ekki ráðist í breytingar á rekstrinum á einni nóttu og tryggt verður að staðið verði við alla samninga sem fyrir liggja gagnvart viðskiptavinum félagsins. Framundan er mikil stefnumótunarvinna innan fyrirtækisins sem þarf að liggja fyrir á næstu vikum.
Fyrirkomulag þessarar aðferðarfræði er sótt til reynslu
sveitarfélagsins Levi í Finnlandi
www.levi.fi. Levi er 900 manna bær sem fær um
600.000 ferðamenn á ári, en fyrir 30 árum kom þangað varla nokkur ferðamaður.
Fyrirkomulagið einkennist af samvinnu og samræmingu. Markaðsstofan þar rekur
upplýsingamiðstöð, viðburðarþjónustu, bókunarþjónustu og margt fleira.
Ferðaþjónar greiða fasta upphæð á ári og svo bókunargjald. Markaðsstofan í Levi
hefur því til umráða 2,5 miljónir € til markaðsaðgerða en heildarframlag
opinberra aðila er þar innan við 14%.
Það er nokkuð fyrirsjáanlegt að fé
frá opinberum aðilum til greinarinnar muni fara minnkandi á komandi árum. Auk
þess er fyrirséð að ákvörðunarréttur Markaðsstofu Vestfjarða um nýtingu þeirra
fjármuna verður einnig skertur. Því er það nauðsynlegt að vestfirsk
ferðaþjónusta snúi strax vörn í sókn og sæki fram í krafti samvinnu allra
ferðaþjónustuaðila í fjórðungnum.
Þó það sé ekki beinlínis ætlunin að
sækja fleiri hundruð þúsund ferðamanna á Vestfirði með þessari aðferð, þá er það
alveg ljóst að miðað við núverandi fyrirkomulag á markaðssetningu íslenskrar
ferðaþjónustu þá eru Vestfirðir ekki að fá þann hlut sem þeir ættu að geta með
betur samræmdu markaðs- og bókunarkerfi. Í dag eru Vestfirðir með 3%
markaðshlutdeild í erlendum gistinóttum. Þannig hefur það verið um nokkurn tíma.
Með þessari aðferð hafa Vestfirðingar betri stjórn á því hvaða skilaboð eru send
til umheimsins sem varða vestfirska ferðaþjónustu.
Vestfirsk
ferðaþjónusta hefur skorað hátt í könnunum undanfarið og umfjöllun áberandi
miðla eins og Lonely Planet sýna það svart á hvítu að sérstaða Vestfjarða er
algjör. Það hlýtur að vera undir okkur sjálfum komið að selja vörur okkar. Það
er nokkuð augljóst að það kerfi sem unnið hefur verið með hefur ekki verið að
virka eins og best verður á kosið. Samvinna er lykilorðið. Samvinna er það sem
fyrst og fremst hefur fært ferðaþjónustuna í sveitarfélaginu Levi í Finnlandi
fram á veginn svo dæmi sé tekið.
f.h. Ferðamálasamtaka
Vestfjarða
Sigurður Atlason
formaður
Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlega sendið fyrirspurnir á netfang
Ferðamálasamtakanna
vestfirdir@gmail.com.
Tilkynningin er einnig birt á Facebook síðu Ferðamálasamtakanna
www.facebook.com/vestfirdir. Þar verður líka hægt að
leggja fram hverskyns fyrirspurnir sem og hér að neðan.