Færni í ferðaþjónustu verður haldið í maí - Námskeið I og II. - Eitthvað fyrir þitt starfsfólk.

Nokkrir þátttakendur á námskeiðinu í fyrra
Nokkrir þátttakendur á námskeiðinu í fyrra
Námskeiðið Færni í ferðaþjónustu fer fram í maí. Að þessu sinni verða í boði tvö námskeið. Þetta er í annað sinn sem fyrra námskeiðið verður haldið en góð þátttaka var á því á síðasta ári. Þetta er gott nám fyrir fólk sem starfar í ferðaþjónustu.

Ferðamálasamtök Vestfjarða vilja hvetja vestfirska ferðaþjónustuaðila til að senda starfsfólk sitt á námskeiðið.

Færni í ferðaþjónustu I - Hefst 2. maí
Færni í ferðaþjónustu I er 60 kennslustunda nám samkvæmt námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og haldið í samstarfi við Ferðamálasamtök Vestfjarða. Námið er ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni.
Tími: Kennt á Ísafirði virka daga kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00. Hefst 2. maí og lýkur 10. maí.
Kennarar: Sigurður Arnfjörð ásamt gestakennurum.
Verð: 10.000 kr. (60 kennslustundir).
 
Færni í ferðaþjónustu II - Hefst 11. maí
Haldið í samstarfi við Ferðamálasamtök Vestfjarða. Sjálfstætt framhald af Færni í ferðaþjónustu I. Námið er 100 kennslustundir og kennt samkvæmt námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Námið er ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni.
Tími: Kennt á Ísafirði virka daga kl. 9:00-12:00 og 13:00-16:00. Hefst 11. maí og lýkur 27. maí.
Kennarar: Ýmsir.
Verð: 17.000 kr. (100 kennslustundir).
 
Skráningar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á http://www.frmst.is/ undir Námskeið, í síma 456 5025, eða með tölvupósti frmst@frmst.is