Sérsniðið námskeið fyrir ferðaþjónustuaðila
Opni háskólinn í
HR býður upp á hagnýtt og spennandi námskeið fyrir fyrirtæki og aðila úr
ferðaþjónustunni.
Samningatækni í ferðþjónustu
Á námskeiðinu
verður fjallað um hvernig nýta má samningatækni til að til að ná hagstæðri
niðurstöðu í samningaviðræðum við viðskiptavini og þjónustuaðila og skapa
traust fyrir langtíma viðskiptasambönd í ferðaþjónustu. Sérstaklega verður
greint frá því hvernig hagnýta megi rannsóknir á menningarmun í uppbyggingu
viðskiptasambanda við fólk frá mismunandi menningarsvæðum og jafnframt hvað
beri að varast. Fjallað verður um
hvernig má auka hæfni í lausn á ágreiningi og hvernig snúa megi átökum í
árangursríkt samstarf. Þátttakendur
takast á við hagnýtar æfingar í samningatækni sem kristalla þær
grundvallaráskoranir sem samningamenn standa frammi fyrir svo þeir megi njóta
aukins sjálfstrausts í samningaviðræðum og geti stjórnað gangi viðræðna og
beint þeim til hagstæðrar niðurstöðu.