Stefnt að umhverfisvottuðum Vestfjörðum
„Ég hef á tilfinningunni að ráðstefnan hafi þegar gert það gagn að nú verði ekki aftur snúið í þessum málum og ég er mjög bjartsýnn á að Vestfirðingar séu tilbúnir að ræða þessi mál af alvöru og hrinda þeim í framkvæmd,“ segir Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða um ráðstefnuna Umhverfisvottaðir Vestfirðir sem haldin var á Núpi í Dýrafirði um helgina. Á ráðstefnunni voru haldin fjölbreytt erindi. Rætt var um stöðu umhverfismála á Íslandi og hvaða aðgerða sé hægt að grípa til, auk þess sem þessi mál voru sett í hnattrænt samhengi. Fjallað var um almennt viðhorf til náttúrunnar og sagðar reynslusögur af vottun einstakra fyrirtækja, með áherslu á mikilvægi vottunar fyrir markaðsstarf og daglegan rekstur. Loks var sagt frá sérstökum verkefnum, svo sem hugmyndum um rafbílavæðingu Íslands. „Ekki er nokkur vafi á að rafbílavæðing hefur víðtæk áhrif í samfélaginu. Nýting innlendra orkugjafa, bætt nýting núverandi raforkukerfis, gjaldeyrissparnaður, áhrif í ferðamannaiðnaði og fjölmörg önnur atriði hafa jákvæð fjárhagsleg áhrif á samfélagið. Minni mengun hefur að auki umhverfislegan ávinning fyrir land og þjóð,“ sagði í erindinu á ráðstefnunni.
Þá var tæpt á mikilvægi þess að Ísland í heild
verði umhverfisvottað. „Heimurinn allur, ekki einungis Ísland, stendur
nú á tímamótum og er nauðsynlegt að taka marga grunnþætti lífernis okkar
til endurskoðunar til að draga úr neikvæðum áhrifum okkar á jörðina.
Íslenskt samfélag hefur að auki orðið fyrir áfalli. Mikilvægt er að
uppbygging og framtíð landsins byggi á sjálfbærni og sterku siðferði.
Umhverfisvottun Íslands er ein leið til aukinnar sjálfbærni í
lifnaðarháttum okkar og hefði jafnframt í för með sér margvísleg jákvæð
áhrif á atvinnu- og mannlíf,“ sagði í erindi frá Náttúrustofu
Vesturlands.
Ferðamálasamtök Vestfjarða stefna að því að fylgja
ráðstefnunni eftir í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga.
Markmiðið er að umhverfisvottun Vestfjarða komist á dagskrá
Fjórðungssambandsins og að vestfirsk sveitarfélög sameinist um að stefna
að slíkri vottun.
Áhugasömum er bent á að hægt er að sjá ráðstefnuritið
á vef Ferðamálasamtaka Vestfjarða og kynna sér hvað kom fram á
ráðstefnunni í stuttu máli.
thelma@bb.is
http://bb.is/Pages/26?NewsID=147286
Myndir frá aðalfundi og stefnumótunarfundi
Nokkur breyting var á stjórn samtakanna. Þrír fyrrum stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér, þau Áslaug Alfreðsdóttir, Sævar Pálsson og Björn Samúelsson. Í þeirra stað komu í stjórn Halldóra Játvarðardóttir, Ragna Magnúsdóttir og Einar Unnsteinsson. Stjórnarmenn eru kosnir fyrir tvö ár í senn og formaður fyrir eitt ár. Sigurður Atlason gaf kost á sér aftur og var kjörinn sem formaður samtakanna. Stjórn Ferðamálasamtakanna sitja eftirfarandi einstaklingar:
Sigurður Atlason, Hólmavík, formaður
Ester Unnsteinsdóttir, Súðavík
Einar Unnsteinsson, Bjarnarfirði
Halldóra Játvarðardóttir, Miðjanesi
Keran Stueland, Breiðavík
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir, Bolungarvík
Sigurður Arnfjörð, Núpi Dýrafirði
Aðalfundur Ferðamálasamtaka um næstu helgi
Þjónustukort MV 2010
Á tenglinum hér að neðan hægt að sjá kortið með upplýsingum um fyrirtæki í ferðaþjónustu á Vestjförðum. Þessar upplýsingar eru fengnar úr gagnagrunni Ferðamálastofu eins og hann kemur fram á www.ferdalag.is.
http://vestfirskferdamal.is/skraarsafn/skra/54/
Mikilvægt er að hver og einn ferðaþjónustuaðili yfirfari sína skráningu og komi með athugasemdir ef þess þarf. Athugasemdum má koma á framfæri við Upplýsingamiðstöðina á Ísafirði í info@westfjords.is eða hjá Markaðsstofunni í jonpall@westfjords.is
Á kortinu eru jafnframt auglýsingar. Hægt er að kaupa auglýsingu í þessa kassa á kr.20.000.-. Fyrstir koma fyrstir fá. Panta þarf pláss með því að senda póst á jonpall@westfjords.is
Umhverfisvottaðir Vestfirðir – Ráðstefna á Núpi 17. apríl
Ferðamálasamtök Vestfjarða standa fyrir metnaðarfullri ráðstefnu undir yfirskriftinni Umhverfisvottaðir Vestfirðir laugardaginn 17. apríl n.k. Ráðstefnan verður haldin í tengslum við aðalfund samtakanna á Hótel Núpi í Dýrafirði og hefst kl. 11:00. Ráðstefnan er öllum opin, en meðal framsögumanna verður Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa unnið að stefnumótun vestfirskrar ferðaþjónustu undanfarna mánuði og haldið fundi um allan fjórðunginn. Mjög mikil þátttaka var á fundunum, en vel yfir 100 manns tóku þátt í umræðum um framtíð vestfirskrar ferðaþjónustu og þar með samfélagsins á Vestfjörðum. Á fundunum kom fram að umhverfismál brenna sérstaklega á Vestfirðingum og skýr krafa var uppi um að tekin yrði umræða um hvers kyns umhverfismál sem varða fjórðunginn.
Í beinu framhaldi af stefnumótunarfundunum ákvað stjórn Ferðamálasamtaka Vestfjarða að hefja strax undirbúning ráðstefnu um kosti þess að stefna að umhverfisvottun Vestfjarða. Tekið var upp samstarf við Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi við undirbúning ráðstefnunnar, en starfsmenn stofunnar hafa lagt fram tillögur um að Ísland verði fyrsta umhverfisvottaða landið í heiminum. Verkefnið er þegar komið vel af stað á Snæfellsnesi.
Á ráðstefnunni Umhverfisvottaðir Vestfirðir verða haldin fjölbreytt erindi. Rætt verður um stöðu umhverfismála á Íslandi og hvaða aðgerða sé hægt að grípa til, auk þess sem þessi mál verða sett í hnattrænt samhengi. Fjallað verður um almennt viðhorf til náttúrunnar og sagðar reynslusögur af vottun einstakra fyrirtækja, með áherslu á mikilvægi vottunar fyrir markaðsstarf og daglegan rekstur. Loks verður sagt frá sérstökum verkefnum, svo sem hugmyndum um rafbílavæðingu Íslands.
Á ráðstefnunni munu fulltrúar Náttúrustofu Vesturlands fjalla sérstaklega um hugmyndafræðina á bak við verkefnið Umhverfisvottað Ísland. Meðal fyrirlesara verður einnig Leo Christensen, atvinnumálafulltrúi Lolland kommune í Danmörku. Leo mun segja frá þeim aðgerðum sem stjórnvöld á Lálandi gripu til fyrir rúmum áratug þegar ástand í atvinnumálum þar var orðið nánast óbærilegt og þeim jákvæðu áhrifum sem þessi nýja stefna hefur haft fyrir íbúa og atvinnulíf eyjarinnar. Þá er ótalinn fjöldi annarra fræðimanna og sérfræðinga sem hafa látið umhverfismál til sín taka og munu miðla ráðstefnugestum af mikilli reynslu sinni á því sviði.
Ferðamálasamtök Vestfjarða stefna að því að fylgja ráðstefnunni eftir í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Markmiðið er að umhverfisvottun Vestfjarða komist á dagskrá Fjórðungssambandsins og að vestfirsk sveitarfélög sameinist um að stefna að slíkri vottun.
Ráðstefnan á Núpi er öllum opin sem fyrr segir. Ekki verður rukkað þátttökugjald, en ráðstefnugestum er bent á að hafa samband við Hótel Núp til að panta sér mat og gistingu ef á þarf að halda. Dagskrá ráðstefnunnar er aðgengileg hér.



