Farþegaflutningar á sjó í atvinnuskyni, s.s hvalaskoðun og sjóstöng
Þeir aðilar sem stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni, þar með taldar skoðunar- og veiðiferðir ferðamanna eru háðir leyfi Siglingastofnunar Íslands. Sótt er um slíkt leyfi hjá Siglingastofnun og hægt er að gera það rafrænt á slóðinni: http://www.sigling.is
Áður en hægt er að sækja um slíkt leyfir þurfa þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi að fullnægja ákvæðum laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003 5. mgr. 1. gr.
Þar kemur m.a fram að samþykki Siglingarstofnunnar þarf fyrir
- neyðaráætlun fyrir skipið sem koma skal fyrir á einum eða fleiri áberandi stöðum um borð
- teikningu af fyrirkomulagi öryggisbúnaðar skipsins sem komið verði fyrir á einum eða fleiri stöðum um borð
- áætlun um öryggisfræðslu fyrir farþega
- mönnun farþegaskipa og útgáfu á öryggismönnunarskírteini fyrir þau þar sem kveðið er á um lágmarksfjölda í áhöfn, samsetningu áhafnar og skírteini fyrir einstakar stöður
- hámarksfjölda farþega sem leyfilegt er að hafa um borð
- farsvið farþegaskipsins
Fleiri áherslur eru listaðar upp og má lesa um ákvæði þessara laga á síðunni http://www.sigling.is/pages/317
Athygli er vakin á því að þetta er alls ekki tæmandi listi hér að ofan og mikilvægt að þeir sem hyggjast fara út í farþegaflutninga á sjó í atvinnuskyni séu í miklum samskiptum við Siglingastofnun.
Siglingastofnun er með útibú á Ísafirði og er síminn þar 560 0000 og netfangið isafjordur@sigling.is
Samkvæmt lögum um skipan ferðamála merkir Ferðaskipuleggjandi aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili sem, að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, setur saman, býður fram og selur í atvinnuskyni ferðatengda þjónustu fyrir almenning. Sá aðili er býður upp á hvalaskoðun eða aðrar bátaferðir sem ná yfir einn dag fellur þar með undir þessa skilgreiningu og þarf að hafa þar til gert ferðaskipuleggjendaleyfi. Ef hinsvegar ferðirnar ná yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) þá er viðkomandi að bjóða fram alferð og þarf þar af leiðandi að sækja um ferðaskrifstofuleyfi sem gefið er út af Ferðamálastofu. Leyfishafi skal hafa leyfið sýnilegt á starfsstöð sinni.
- Leyfi fyrir Ferðaskipuleggjendur má nálgast hér: www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=492
- Leyfi fyrir ferðaskrifstofur má nálgast hér: www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=491



