Tjaldsvćđi
Til að fá leyfi til að reka tjaldsvæði á Vestfjörðum þarf að hafa samband við tvo aðila: heilbrigðiseftirlit fjórðungsins og yfirvöld viðkomandi sveitarfélags.
Heilbrigðiseftirlitið er útgefandi starfsleyfa fyrir tjaldsvæði og hefur eftirlit með þeim í samræmi við reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti. Þegar afla á leyfis fyrir tjaldsvæði þarf að hafa samband við heilbrigðisfulltrúa, sem gerir úttekt á svæðinu og gefur leyfið út ef heilbrigðiskröfur eru uppfylltar. Útgáfa leyfis er þó háð því að aflað hafi verið samþykkis skipulagsyfirvalda fyrir notkun svæðisins í þessum tilgangi, auk þess sem allar framkvæmdir á svæðinu verða að hafa hlotið samþykki skipulags- og byggingaryfirvalda. Þetta á t.d. við um salerni og aðra aðstöðu sem útbúa á fyrir gesti og starfsfólk tjaldsvæðisins.
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða er til húsa að Aðalstræti 21 í Bolungarvík. Síminn þar er 456-7087 og netfangið hjá forstöðumanninum, Antoni Helgasyni, er antonh@snerpa.is.
Hægt er að nálgast leiðbeiningarit um uppbyggingu tjaldsvæða á vef Ferðamálstofu.
Þegar leyfi hefur verið veitt
Þegar starfsleyfi fyrir tjaldsvæði hefur verið veitt þarf að hafa samband við Ferðamálastofu (www.ferdamalastofa.is) til að fá svæðið skráð í gagnagrunn stofnunarinnar. Best er að senda allar upplýsingar (þ.a.m. afrit af leyfisbréfinu) í tölvupósti á upplysingar@icetourist.is, eða hringja í 535-5500 til að fá nánari upplýsingar.
Frekari upplýsingar um skráningu í gagnagrunninn er hægt að nálgast á Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði í s.450 8060 og info@vestfirdir.is.



