Ferðaskipuleggjendur og ferðaskrifstofur
Þeir sem bjóða eftirtalda þjónustu þurfa að vera með ferðaskipuleggjendaleyfi:
- a. Skipulagningu ferða hópa og einstaklinga, innan lands og erlendis.
- b. Skipulagningu funda, sýninga og ráðstefna og hvers kyns þjónustu því tengda, innan lands sem utan.
- c. Hvers konar umboðs- og endursölu farmiða með skipum, bifreiðum, flugvélum eða járnbrautum.
- d. Dagsferðir sem fela í sér ýmiss konar afþreyingu og frístundaiðju, svo sem hestaferðir, vélsleðaferðir, fljótasiglingar og ævintýraferðir með sérútbúnum ökutækjum.
- e. Ferðir og veitingar sem hluta af veittri þjónustu.
Ef boðið er uppá „alferð" þarf hins vegar að fá ferðaskrifstofuleyfi. Alferð er, skv. lögum um skipan ferðamála:
„ ... samsetning ekki færri en tveggja eftirtalinna atriða: flutnings, gistingar og/eða annarrar þjónustu við viðskiptavin sem tekur til verulegs hluta ferðarinnar, þegar ferð er seld eða boðin til sölu á heildarverði og þegar þjónustan tengd ferðinni tekur til a.m.k. 24 klst. eða í henni er falin gisting. Það telst alferð þótt reikningar séu gerðir sérstaklega fyrir hvern hluta ferðar og greitt sé fyrir ferð í hlutum."
Ferðaskrifstofa getur jafnframt haft með höndum og veitt alla þá ferðatengdu þjónustu sem ferðaskipuleggjandi gerir, hvort sem hún er veitt í formi alferða eða ekki.
Ferðskipuleggjandi má útbúa og skipuleggja alferð, en hefur þó ekki heimild til að selja hana beint heldur verður salan að fara fram í gegnum ferðaskrifstofu.
Til að fá ferðaskipuleggjenda- eða ferðaskrifstofuleyfi þarf:
- a. hafa búsetu innan aðildarríka Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.
- b. hafa náð 20 ára aldri
- c. vera lögráða og hafa ekki á síðustu fjórum árum í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hefningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld né lögum um skipan ferðamála
- d. hafa forræði á búi sínu
- e. hafa ekki verið sviptur ferðaskipuleggjanda- eða ferðaskrifstofuleyfi á síðustu þremur árum frá umsókn.
Sé sótt um ferðaskrifstofuleyfi þarf einnig að leggja fram staðfestingu á tryggingu vegna starfseminnar.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar má finna á vef Ferðamálastofu:
- Ferðaskipuleggjendur: www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=492
- Ferðaskrifstofur: www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=491
- Einnig má skoða lög um skipan ferðamála á vef alþingis, www.althingi.is/lagas/nuna/2005073.html



