Póstlisti
26. nóv 08 - Jón Páll Hreinsson

Gisti- og veitingaleyfi

Umsóknum um leyfi til að reka gisti- og/eða veitingastað skal skila til sýslumanns.  Umsóknareyðublað er hægt að fá á sýsluskrifstofunni á Ísafirði og lögregluembættum.  Einnig er eyðublaðið aðgengilegt á vef lögreglunnar www.logreglan.is/upload/files/Umsókn%20um%20veitingaleyfi%20II%20_2_.pdf


Með umsóknareyðublaðinu fylgja upplýsingar um skilgreiningu á hinum ýmsu flokkum gisti- og veitingastaða, auk nokkurra greina úr lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Frekari upplýsingar og tengingar inn á lög og reglugerðir má finna á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is/displayer.asp?cat_id=540#Veitinga-%20og%20gististaðir

 

Þegar umsóknareyðublaðinu hefur verið skilað inn útfylltu, mun fulltrúi á sýsluskrifstofu sjá um að útvega nauðsynleg fylgigögn. Þó þarf umsækjandi sjálfur að skila inn teikningu af húsinu í A4 stærð ef um nýjan gististað er að ræða, eða ef húsnæðinu hefur verið breytt.


Þegar leyfi hefur verið veitt er best að hafa sem fyrst samband við Ferðamálastofu til að tryggja að fyrirtækið verði strax fært í gagnagrunn stofnunarinnar.


ATH. Taki nýr aðili við rekstrinum skal sótt um nýtt leyfi. Meðan umsókn er til afgreiðslu gildir fyrra leyfi.

 


Vefumsjón