2. des 08 - Jón Páll Hreinsson
Í þessum greinarflokki sem birtist hér að neðan er fjallað um hin ýmsu leyfi sem aðilar í ferðaþjónustu þurfa að hafa til að geta haldið úti þjónustu fyrir ferðamenn.
Leyfin og leyfisferlið er misjafnlega umfangsmikið eftir eðli þeirra starfsemi sem við á hverju sinni. Tilgangurinn með þessum greinum er að reyna eftir bestu vitund að varpa ljósi á þennan málaflokk og veita upplýsingar almennt um þetta ferli og jafnframt sértækar upplýsingar fyrir ferðaþjóna á Vestfjörðum, eftir því sem við á.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf um leyfisveitngar í ferðaþjónustu er hægt að nálgast á Upplýsingamiðstöð Vestfjarða á Ísafirði s.450 8060 eða info@vestfirdir.is
Þær greinar sem hér eru fyrir neðan eru sífellt í vinnslu og geta upplýsingar sem liggja að baki þeim breyst án fyrirvara. Hvorki Ferðamálasamtök Vestfjarða, né Upplýsingamiðstöð Vestfjarða bera ábyrgð á þeim upplýsingum sem geta misfarist.