Sigurður Atlason, formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða
Frá síðasta aðalfundi Ferðamálasamtaka Vestfjarða sem haldinn var í Hótel Núpi í
Dýrafirði fyrir réttu ári síðan þann 17. apríl 2010, hafa verið haldnir átta
stjórnarfundir. Þrisvar sinnum hefur stjórnin náð að hittast augliti til
auglitis og fimm sinnum hafa fundir verið haldnir í gegnum síma. Stjórnin öll
hefur verið starfsöm og tekið virkan þátt í þeim málefnum sem rædd hafa verið á
fundunum.
Síðasta ár hefur verið mjög annasamt allt frá því að
aðalfundinum á Núpi lauk. Í tengslum við þann aðalfund var haldin ráðstefnan
Umhverfisvottaðir Vestfirðir sem var gríðarlega vel sótt og vakti mikla athygli.
Nokkur vinna tók við að ýta á eftir að Fjórðungssamband Vestfirðinga hugaði að
málinu með því að hnippa í mann og annan sem gætu haft áhrif í þá átt. Þing
Fjórðungssambandsins var síðan haldið á Hólmavík þann 3. september. Þar ályktaði
Fjórðungssambandið eftirfarandi um tillögu um umhverfisvottun Vestfjarða sem
lögð var fram á þinginu.
- Fjórðungsþing Vestfirðinga samþykkir að
stefna að sameiginlegri umhverfisvottun Vestfjarða í heild samkvæmt staðli Earth
Check undir forystu Fjórðungssambands Vestfirðinga. Þingið felur stjórn og
framkvæmdastjóra að kynna hugmyndina og kanna vilja sveitarstjórna og sækja um
aðild að Earth Check fyrir Vestfirði í heild ef viðbrögð verða
jákvæð.
Það er alveg óhætt að fagna þessari tillögu og ég held að
Ferðamálasamtök Vestfjarða geti verið stolt af því að hafa þokað þessari umræðu
af stað. Það er mín skoðun að þetta sé mikið hagsmunamál fyrir greinina og
raunar alla íbúa á Vestfjörðum. Því er við að bæta að umræða um vottunarferlið
er þegar komið af stað innan stjórnar Fjórðungssambands Vestfjarða og væntanlega
berast fregnir af því innan skamms hvernig að því verði
staðið.
Ferðamálasamtök Vestfjarða eru einn af þremur stofnaðilum
Markaðsstofu Vestfjarða og eiga þar einn fulltrúa af þremur í stjórn. Formaður
samtakanna hefur ávallt verið fulltrúi samtakanna í stjórninni. Síðastliðið vor
var auglýst eftir nýjum forstöðumanni Markaðsstofunnar eftir að Jón Páll
Hreinsson sagði upp störfum eftir fjögurra ára farsælt starf og sneri sér
alfarið að öðrum verkefnum. Það var vandað til verka í öllu umsóknarferli og
talsverður tími fór í fundarhöld vegna umsóknarferlisins. Að lokum ákvað stjórn
Markaðsstofunnar að ráða Gústaf Gústafsson til starfa og hann hóf síðan störf í
ágúst síðastliðinn. Hann hefur að mínu mati fært ferskan blæ inn í alla umræðu
um markaðssetningu fjórðungsins á skömmum tíma og ég bind miklar vomir við að
þau verk sem unnin verða innan markaðsstofunnar á næstu misserum eigi eftir að
færa vestfirska ferðaþjónustu vel fram á veginn, í góðu samstarfi við alla
aðila.
Anna Guðrún Edvardsdóttir hefur lengst af verið formaður stjórnar
markaðsstofunnar og setið þar fyrir hönd Fjórðungssambandsins. Hún hætti í
stjórninni fyrir skömmu og við af henni tók Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.
Ásgerður Þorleifsdóttir ráðgjafi hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða tók þá við
formennskunni í markaðsstofunni. Ég vil nota tækifærið og þakka Önnu Guðrúnu
fyrir frábært samstarf undanfarin ár og bjóða Albertínu hjartanlega velkomna í
hópinn.
Ferðamálasamtökin opnuðu sérstaka sölusíðu á netinu fyrir
göngukortin. Sú síða er eingöngu ætluð endursöluaðilum kortanna og var ætlað að
auka sölu á kortunum og gera það þægilegra fyrir alla að nálgast kortin til að
hafa í sölu hjá sér. Það er skemmst frá því að segja að vefsíðan jók verulega
sölu á kortunum og gerði alla vinnu við afgreiðslu þeirra markvissari.
Sölusíðuna er hægt að nálgast í gegnum heimasíðu Ferðamálasamtakanna
www.vestfirskferdamal.is og ég vil hvetja ykkur til að nota hana þegar þið
pantið kortin. Það er nú þannig að við erum öll starfandi í ferðaþjónustu og
tengdum greinum og það er ekki alltaf tími til að svara símann og taka á móti
pöntunum á háannatíma. Með þessu móti er hægt að ganga frá pöntunum án þess að
hætta sé á því að handskrifaður minnismiðar týnist eða einfaldlega að það sé
enginn tími til að sinna pöntuninn nákvæmlega á þeirri stundu sem hún
berst.
Göngukort samtakanna eru mjög vönduð og ættu að vera til sölu á
sem allra flestum stöðum í fjórðungnum. Ég vil hvetja alla ferðaþjónustuaðila,
verslanir og aðra staði þar sem von er á ferðafólki að hafa kortin til sölu í
hillunum hjá sér. Þau auka möguleika ferðamanna til afþreyingar og eru ekki
síður gott verkfæri til að halda þeim lengur á svæðinu. Á næstu vikum verða
endurútgefin þrú kort úr seríunni. Það er kort nr. 1, Hornstrandakortið, kort
nr. 2, kortið sem nær yfir Ísafjarðardjúp og suður í Dýrafjörð og kort nr. 4 sem
tekur yfir Vesturbyggð og Tálknafjörð. Þið sem eruð hér á fundinum getið líka
haft samband við mig hér á eftir til að leggja inn pöntun. Og ég hvet ykkur til
þess.
Vestfirsk ferðaþjónusta hefur skorað hátt í könnunum undanfarið og
umfjöllun áberandi miðla eins og Lonely Planet sýna það svart á hvítu að
sérstaða Vestfjarða er algjör. Ég er sannfærður um að við megum eiga von á góðu
tímabili framundan og það er eins gott að fara að undirbúa sumarvertíðina af
kostgæfni. Þegar upp er staðið þá er það undir okkur sjálfum komið hvernig til
tekst. Ef við, hvert og eitt okkar, hugum vel að gæðamálum, reynum að þoka
opnunartímum fram á haustið og skapa greininni fleiri tækifæri yfir
vetrarmánuðina þá er ég nokkuð sannfærður um að við munum sjá greinina vaxa
hraðar en okkur getur órað fyrir.
Stefnumótunarvinnu vestfirskrar
ferðaþjónustu er ekki lokið þó skýrslan sjálf sé komin út. Nú tekur við vinna
við að framfylgja henni. Með henni stefnum við að ákveðinni framtíðarsýn árið
2015. Svo við getum staðið augliti til auglitis við hana á réttum tíma þá þarf
að láta hendur standa fram úr ermum. Það er nefnilega þannig að það er fátt ef
ekkert sem gerist af sjálfu sér. Í stefnumótuninni koma fram verkefnatillögur
þar sem frumkvæði er sett á ábyrgð ákveðinna aðila. Ferðamálasamtökin bera
ábyrgð á nokkrum þáttum sem þarf að einhenda sér í á næstu vikum og mánuðum. Þar
má nefna uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar sem haldin skal á hverju hausti, með
þeim tilgangi að opna á betri kynni milli einstakra ferðaþjónustuaðila í
fjórðungnum og auka þannig í leiðinni vægi í upplýsingagjöf til ferðamanna, því
það er auðvitað nauðsynlegt að við þekkjum öll hvað sé í boði utan okkar
venjulega umhverfis. Gæðamálin eru annar þáttur sem Ferðamálasamtökin þurfa að
vinna að næsta vetur í góðu samstarfi við alla ferðaþjónustuna á Vestfjörðum og
huga þarf sérstaklega að gæðaboðorðum ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan þarf að
skuldbinda sig til þess að vinna eftir þeim en til þess að svo geti orðið þá
þarf víðtæka samvinnu um gerð þeirra. Markmiðið hlýtur alltaf að vera að við
veitum úrvalsþjónustu og sýnum gott viðmót til ferðamanna.
Vestfirðir
sem áfangastaður fengu sérstaka viðurkenningu á síðasta ári fyrir tilhlutan
Vatnavina Vestfjarða – Eden verðaunin –
European Destination of Excellence. Eden
verðlaunin eru evrópskt samstarf og eru afhent ferðaþjónustu í hverju
þáttökulandi einu sinni ári. Vatnavinir unnu sérlega glæsilega umsókn til
verðlaunanna á síðasta ári í góðu samstarfi við Ferðamálasamtökin. Tveir
fulltrúar vestfirskrar ferðaþjónustu fóru til Brussel í október s.l. til að taka
á móti verðlaununum. Þar voru í för vatnavinurinn Vigdís Esradóttir og formaður
Ferðamálasamtakanna. Það var gagnlegt að kynnast öllu því ferli og auðvitað ansi
margt sem kom manni spánskt fyrir sjónir. Ekki síst ótrúlega stirðbusalegt og
formlegt skipulag sem er eitthvað sem við lærum vonandi aldrei neitt af. En það
var mikilvægt að hitta aðila frá öðrum lítt kunnum svæðum í Evrópu og getur
síðan gefið tækifæri á frekari samstarfi. Í næstu viku verður Eden fundur á
Möltu sem formaður ferðamálasamtakanna mun sækja ásamt forstöðumanni
markaðsstofunnar. Þar verða Vestfirðir kynntir á málþingi og vonandi komum við
til baka margs vísari um hvernig vestfirsk ferðaþjónusta getur nýtt sér þetta
verkefni enn frekar.
Það felst talsverð markaðssetning á svæðinu með
þessum verðlaunum. Stjórnendur Eden verkefnisins lét gera sérstök
kynningarmyndbönd um áfangastaðina sem svæðin geta svo nýtt sér eins og þau
vilja. Þessa dagana og allt fram til 19. júní verða þau sýnd reglulega og
stundum oft á dag á EuroNews sjónvarpsstöðinni sem er varpað um allt meginland
Evrópu.
Ferðamálasamtök Vestfjarða eru aðili að Ferðamálasamtökum
Íslands. Formaður samtakanna hefur verið fulltrúi í stjórn þar frá upphafi. Í
vetur gerði stjórnin þá breytingu að formaður skildi ekki sitja í stjórn þeirra
samtaka, heldur annar stjórnarmaður. Stjórnin kaus síðan Sigurð Arnfjörð til að
fara með atkvæði Ferðamálasamtaka Vestfjarða þar inni. Þetta var gert til að
tryggja enn frekar að umræður sem fara fram innan Ferðamálasamtaka Íslands rati
inn á borð landshlutasamtaka okkar. Með þessari breytingu er það von stjórnar
FMSV að ákvarðanir og umræður sem varða málefni ferðaþjónustunnar rati frekar
inn á borð stjórnar FMSV, sem geti svo fjallað efnislega um málin áður en
endanleg niðurstaða liggur fyrir innan stjórnar FSÍ.
Stjórn FMSV telur að
flest málefni sem koma inn á borð FSÍ krefjist ekki það skjótrar úrlausnrar að
þeim sé ekki gefinn tími til umræðna innan stjórna landshlutasamtakanna. Með því
að hafa almennan stjórnarmann FMSV í stjórn FSÍ álítur stjórn FMSV að með því sé
ábyrgð stjórnarmanna samtakanna dreifðari og starf samtakanna verði
gegnsærra.
Stjórn ferðamálasamtakanna hefur ákveðið að kaupa
meirihlutaeign í ferðaskrifstofunni Vesturferðir á Ísafirði. Gengið hefur verið
frá samkomulagi um að samtökin kaupi hluti Hótels Ísafjarðar, eignarhluti
fjölskyldu Ólafs Arnar Ólafssonar og eignarhlut Flugfélags Íslands. Ætlunin með
kaupunum er að tryggja öfluga upplýsinga- og sölugátt með skilvirkri
bókunarþjónustu sem allir ferðaþjónustuaðilar í fjórðungnum hafi aðgang að.
Unnið verður í nánu samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða og vefgáttin
westfjords.is verður einnig nýtt til kynningar og sölu á vöru og þjónustu sem er
í boði hverju sinni á svæði Ferðamálasamtaka Vestfjarða.
Með kaupunum mun
gefast tækifæri fyrir öflugri samvinnu meðal allrar ferðaþjónustunnar með því að
opna einn risastóran markað á vestfirskri ferðaþjónustu og opna sölusíðu þar sem
hægt verður að versla beint allar þær vörur sem eru í boði í greininni. Gisting,
afþreying, ferðapakkar og hvað annað sem vestfirsk ferðaþjónusta hefur upp á að
bjóða verði öll á einum stað og viðskiptavinir munu ekki þurfa að velkjast um
hvað er í boði í fjórðungnum. Auk þess eiga viðskiptavinir að geta verslað alla
þjónustu sem þeim þóknast beint frá Vestfjörðum áður en af stað er haldið. Eins
og staðan er í dag þá getur verið frekar flókið að átta sig á því hvað er
raunverulega í boði í fjórðungnum og skilaboð eru oft misvísandi.
Ætlunin
er að mjög breið samstaða verði um eignarhald Vesturferða og félagið verði nýtt
sem allsherjar bókunarmiðstöð fyrir vestfirska ferðaþjónustu. Hagnaður af
rekstri félagsins mun renna til markaðssetningar alls fjórðungsins og stórauka
þannig fjármagn til markaðssetningar. Öllum verður gefinn kostur á að kaupa hlut
í félaginu en Ferðamálasamtökin munu strax í sumar selja stóran hluta af 70,2%
hluta sínum í Vesturferðum og halda eftir um 25% til að tryggja að sú
stefnumótun sem fara mun fram innan félagsins haldi. Stefnt er að því að auka
nokkuð hlutafé í félaginu. Þannig mun öllum gefast kostur á að kaupa hluti upp á
50 þús til 500 þús krónur á næstunni og verða um leið meiri áhrifaaðilar fyrir
markaðssetningu fjórðungsins. Fyrirkomulag þessarar aðferðarfræði er sótt til
ákveðinna svæða í Finnlandi þar sem svipað fyrirkomulag hefur tekist það vel upp
að fjármagn til markaðssmála hefur margfaldast, aukið verulega við tekjur
ferðaþjónustunnar og orðið hvati til aukinnar þjónustu og þar með skapa meiri
atvinnu.
Seinna á fundinum mun stjórnin leita eftir staðfestingu
aðalfundarins á kaupunum. Ef af henni verður þá liggur fyrir að breyta þurfi
lögum samtakanna. Í þeim er enga grein að finna um hvernig tekið skuli á því
hvaða rétt þeir félagsmenn sem segja sig úr samtökunum eiga til þeirra eigna sem
félagið á hverju sinni, þar með talið til hlutafjár í einkahlutafélögum. Eins og
lögin eru í dag þá mögulega geta einstakir félagsmenn ákveðið að hætta í
félaginu og krafist sins eignarhluta með. Það er gat sem þarf að stoppa í til að
koma í veg fyrir hverskyns vandræði sem stjórnarmenn samtakanna í framtíðinni
þyrftu jafnvel annars að glíma við í réttarsölum með tilheyrandi fjárútlátum.
Þessháttar klásúlur sem bæta þarf inn í lögin finnast í langflestum lögum félaga
sem fara með eignir, en Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa verið eignalaus til
þessa. Því mun stjórnin bera fram tillögu seinna á fundinum að honum verði
frestað og aðalfundurinn samþykki að boða til framhaldsaðalfundar á næstunni.
Með fundarboði fyrir þann fund fylgi tillaga að lagabreytingum sbr. 8.gr.
núgildandi laga samtakanna.
- Til að lagabreytingar öðlist gildi þarf
2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi, enda berist tillaga um slíkt með fundarboði.
Tíminn yrði síðan notaður til þess að vinna nauðsynlegar
lagabreytingatillögur. Í 6. grein laga samtakanna er kveðið á um hvernig
skuli boðað til aðalfundar á þessa leið.
- Aðalfundur skal boðaður
með auglýsingu með minnst 2 vikna fyrirvara.
Þessi
ábending um vöntun í lögum samtakanna kom fram hjá einum félaga þeirra fyrir
aðeins tveimur dögum síðan. Strax í framhaldinu var leitað álits hjá Einari Erni
Thorlacius lögfræðingi og fyrrverandi sveitarstjóra Reykhólahrepps sem starfaði
með samtökunum og árabil og hefur því taugar til þeirra. Stjórnin mun því leggja
fram þessa tillögu samkvæmt hans áliti.
Ég vil þakka fyrir margar góðar
samverustundir með öllum þeim sem ég hef starfað með að málefnum
ferðaþjónustunnar undanfarin ár. Við búum við mikinn mannauð í greininni og þá
ekki síður í stoðkerfi greinarinnar sem hefur verið boðin og búin til aðstoðar á
allan hátt. Meðan allir gera sitt besta þá þurfum við engu að kvíða í
framtíðinni.
Góðar stundir.
Skrímslasetrinu á Bíldudal þann 2.
apríl 2011
Sigurður Atlason
formaður FMSV